Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Norð Vestur

Norð Vestur

Oct 22, 2010 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2010
  • Lengd: 100 mín.
  • Land: Ísland
  • Stjórnandi: Einar Þór Gunnlaugsson
  • Kvikmyndataka á Vestfjörðum: Jóhannes Jónsson.
  • Kvikmyndataka í Reykjavík: Arnar Steinn Friðbjarnason.
  • Þrívídd og brellur: Halldór Bragason.
  • Tónlist: Gunnar Tynes, Sigurlaug Gísladóttir, Kristinn Gunnar Blöndal, Frosti Runólfsson.
  • Hljóðmix: Bíóhljóð.
  • Förðun: Svala Sif Sigurgeirsdóttir, Eva Björg Eyjólfsdóttir.
  • Framleiðandi: Einar Þór Gunnlaugsson fyrir Passport Kvikmyndir.

EFNI: Norð Vestur rekur atburðarrás björgunaraðgerða á Flateyri eftir að mikið snjóflóð fell á bæinn aðfaranótt 26. október 1995. Áður en aðstoð barst Flateyringum voru þeir einir í nærri fimm klukkustundir að leita, finna og grafa upp nágranna sína, vini og ættingja, og skipuleggja aðgerðir. Margar hindranir voru í vegi björgunarsveita úr nágrannabyggðum og af landinu öllu, bæði veðurofsi og snjóflóðahætta. Snjóflóðið reyndist eitt mannskæðasta snjóflóð á Íslandi og markaði árið 1995 tímamót í hamfarasögu landsins, en alls fórust 35 manns í flóðum það ár.

Þessi einstæði atburður er mörgum í fersku minni, en frá honum segja yfir 40 einstaklingar, heimafólk frá Flateyri, aðstandendur, björgunar- og fjölmiðlafólk og fjöldi þjóðþekktra Íslendinga. Einnig einstaklingar sem lentu í flóðinu og voru grafnir undir snjó í allt að 9 klukkustundir.

  • DAGSKRÁ: Nýjar myndir
  • SÝND FRÁ: 22. október 2010
Kvikmyndir
Engin skoðun á “Norð Vestur”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.