Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Tomas Vinterberg viðstaddur sérstaka sýningu á Submarino í Bíó Paradís

Tomas Vinterberg viðstaddur sérstaka sýningu á Submarino í Bíó Paradís

Oct 26, 2010 Engin skoðun

Tomas Vinterberg leikstjóri Submarino, sem hlýtur kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár, verður viðstaddur sérstaka sýningu á myndinni á vegum Græna ljóssins og Ting – norrænnar listahátíðar, þriðjudaginn 2. nóvember kl. 20:00. Að lokinni sýningu myndarinnar mun hann svara spurningum áhorfenda, undir stjórn Árna Svans Daníelssonar guðfræðings og meðlims rannsóknarhópsins Deus ex cinema.

Submarino er saga tveggja aðskildra drengja, sem bera merki dapurlegrar æsku. Þeir voru aðskildir á unga aldri þegar sorglegur atburður sundraði fjölskyldunni. Þegar myndin hefst er líf Nick gegnsýrt  af áfengisneyslu og ofbeldi, en bróðir hans er einstæður faðir sem reynist erfitt að veita syni sínum betra líf því að hann er fíkill. Leiðir þeirra skarast og það kemur til óumflýjanlegs uppgjörs.

Í Submarino snýr Thomas Vinterberg aftur til þeirrar einföldu kvikmyndagerðar sem einkenndi fyrstu verk hans eins og  Veisluna (Festen) sem hann varð frægur fyrir. Leikstjórinn var heillaður af því sterka raunsæi sem kemur fram í skáldsögu Jonas T. Bengtsson um sektarkennd foreldra og sökkti sér í reynsluheim aðalpersónanna tveggja, Nick (Jakob Cedergren) sem er félagslega einangraður, og bróður hans (Peter Plaugborg), sem er fíkniefnaneytandi og faðir lítils drengs sem heitir Martin. Til að kynnast miskunnarlausu umhverfi persónanna eins vel og mögulegt var, sökkti leikstjórinn sér niður í heim verkafólks í norðvesturhluta Kaupmannahafnar og til þess að afla sér þekkingar á lífi fíkilsins, föður Martins, leitaði hann til gamals skólafélaga  sem hefur verið heróínfíkill í 20 ár.

Fjölmargir leikarar og starfsmanna við myndina, eins og kvikmyndatökumaðurinn Charlotte Bruus Christensen og Tobias Lindholm handritshöfundur, voru að vinna við kvikmynd í fyrsta sinn og ber hún þess merki í ákafa og orku sem minnti Vinterberg á frumraun sína. “Ég hafði saknað ákafans frá því ég gerði útskriftarmynd mína úr danska kvikmyndaskólanum, fyrir tilkomu Dogma”, sagði hann.

Submarino var frumsýnd í opinberri samkeppni á Berlínarhátíðinni fyrr á þessu ári. Hún hefur verið seld til dreifingar í kvikmyndahús í fjölmörgum löndum, m.a. Frakklandi, Benelux löndunum, Spáni, Ítalíu og Japan. Hún var frumsýnd í Danmörku í mars síðastliðnum og hlaut mjög góðar viðtökur.

Bíó Paradís sýnir í samvinnu við Græna ljósið og Ting – norræna listahátíð allar þær fimm myndir sem tilnefndar voru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, ásamt fimm eldri myndum sömu leikstjóra. Sýningarnar standa frá 29. október til 4. nóvember.

Fréttir/pistlar
Engin skoðun á “Tomas Vinterberg viðstaddur sérstaka sýningu á Submarino í Bíó Paradís”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.