Eins og við værum
- Tegund og ár: Tilraunakennd heimildamynd, 2010
- Lengd: 30 mín.
- Land: Ísland
- Stjórnandi: Ragnheiður Gestsdóttir
- Framleiðandi: LoFi Productions, Dorothée Kirch
EFNI: Eins og við værum fjallar um listmálara og módelið hans. Þeir eru staddir í fagurri en sökkvandi borg. Á vinnustofunni blasir við sama verkefni dag eftir dag, að málarinn máli mynd af manninum. Þegar eitt málverk er tilbúið hefjast þeir handa við næsta. Verkin hrannast upp í kringum þá, tíminn líður og borgin heldur áfram að sökkva. Endurtekningin og umhverfið hafa æ meiri áhrif og einangrun, innilokunarkennd og vænisýki láta á sér kræla. Í borg sem er líkust því að vera leiksvið fellur móða á þau mörk sem áður voru skír. Hvað er líf og hvað er list? Félagarnir muna ekki lengur af hverju þeir hófu þessa vegferð eða hvort – og þá hvenær – henni muni ljúka. Af hvorum þeirra er sú mynd sem verður til á degi hverjum?
UMSÖGN: Eins og við værum er tilraunakennd heimildarmynd um verk Ragnars Kjartanssonar, Endalokin, sem hann sýndi á Feneyjatvíæringnum 2009. Ragnar og fyrirsætan Páll Haukur Björnsson dvöldu í Feneyjum í hálft ár og máluðu þar eitt málverk á dag fyrir stöðugum straumi gesta.
- DAGSKRÁ: Nýjar myndir.
- SÝND: 14., 16. og 18. nóvember kl. 20