ÞÖGLAR: Der letzte Mann (Sá hlær best…)
- Tegund og ár: Þögul leikin mynd, 1924
- Lengd: 77 mín.
- Land: Þýskaland
- Leikstjóri: F.W. Murnau
- Aðalhlutverk: Emil Jannings, Maly Delschaft og Max Hiller
- Dagskrá: Þöglar myndir með Oddnýju Sen.
- Sýnd: 31. mars 2011
UMSÖGN: Der Letzte Mann eftir Friedrich Wilhelm Murnau (Nosferatu, Faust, Sunrise) var gerð árið 1924 og þykir með áhrifaríkari verkum þýsku gullaldarinnar frá 1918-1933. Hún fjallar um dyravörð á fínu hóteli (Emil Jannings) sem er lækkaður í tign og missir þar með sjálfsvirðingu og heiður. Murnau fann upp nýjungar í kvikmyndatækni sem hann beitti við gerð myndarinnar og þykja sjálfsagðar í dag, en er frumherjaverk á þessum síðustu árum fyrir hljóðbyltinguna. Örlög dyravarðarins láta engan ósnortinn og við fylgjumst með viðbrögðum fjölskyldu og vina hans og upplifum sorg hans og gleði í gegnum hlutlægt sjónarhorn kvikmyndatökuvélarinnar sem þarna var notað í eitt af fyrstu skiptum í kvikmyndasögunni.
Oddný Sen kvikmyndafræðingur flytur stutt erindi á undan sýningu myndarinnar.