Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: El Topo

MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: El Topo

Oct 10, 2011 Engin skoðun

Mánuður meistarans:

Mánuður meistarans er nýr liður á dagskránni okkar. Hver mánuður frá október til apríl verður helgaður tilteknum leikstjóra og verða fjórar myndir viðkomandi sýndar, hver þrisvar um hverja helgi.

Alejandro Jodorowsky:

Alejandro Jodorowsky er fæddur 1929 í Chile.  Hann er hylltur um veröld víða fyrir afar sérstæðar myndir sínar sem eru uppfullar af súrrealísku ofbeldi og sérkennilegri blöndu mystíkur og trúarlegra ögrana. Verk hans hafa hlotið takmarkaða dreifingu en notið vinsælda í hverskyns jaðarkreðsum. Sjálfur nefnir hann Fellini sem sinn helsta áhrifavald meðan listamenn á borð við Marilyn Manson og David Lynch hafa sótt innblástur til hans. Jodorowsky hefur ekki verið mjög pródúktívur sem kvikmyndagerðarmaður hin seinni ár, en hann starfar einnig sem leikskáld og sviðsleikstjóri í Mexíkó. Hann stefnir þó að því að filma framhald af El Topo á næsta ári og kallast verkið Abel Cain.

EL TOPO:

  • 1970/125 MÍN.
  • SÝND: 14.-16. október 2011

EFNI: El Topo (Moldvarpan, leikin af Jodorowsky sjálfum) er í flokki svokallaðra sýru-vestra og segir af samnefndum manni sem leitar að tilgangi lífsins ásamt 6 ára syni sínum. Þeir feðgar lenda í miklum mannraunum og loks er El Topo drepinn en hann rís upp aftur og fær skjól hjá samfélagi afmyndaðs fólks sem er lokað inní stórum helli.

Kvikmyndir, Mexíkó
Engin skoðun á “MÁNUÐUR MEISTARANS/Alejandro Jodorowsky: El Topo”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.