Midnight in Paris (Miðnætti í París)
- Tegund og ár: Gamanmynd, 2011
- Land: Spánn/Bandaríkin
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Woody Allen
- Aðalhlutverk: Owen Wilson, Rachel McAdams, Marion Coutillard
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 14. október 2011
EFNI: Nýjasta mynd Woody Allen segir af handritshöfundinum Gil og kærustu hans Inez sem verja fríi sínu í París. Gil vinnur að fyrstu skáldsögu sinni en Inez lætur sér fátt um finnast. Gil fær óvænt uppfyllta ósk sína um að ferðast aftur í tímann til þriðja áratugsins, sögusviðs skáldsögu sinnar. Þar hittir hann fyrir fjölmarga fræga listamenn og rithöfunda sem hjálpa honum varðandi skrifin og hvernig eigi að lifa lífinu. Gil áttar sig á því að fortíðarþráin er alltaf til staðar á öllum tímum, því að stundum getur verið meira freistandi að horfa til baka gegnum rósrauð gleraugu en að sætta sig við flókinn samtíma og óvissa framtíð.
UMSÖGN: Þessi afar sjarmerandi mynd Allen (og ein vinsælasta mynd hans frá upphafi) hefur fengið afbrags dóma (t.d. 92% jákvæðar umsagnir á Rotten Tomatos, 7.9 í meðaleinkunn). Roger Ebert skrifar: “Það er ekki hægt að líka illa við þessa mynd. Annaðhvort tengir þú við hana eða ekki. Ég er þreyttur á myndum sem eru fyrir “alla”, þ.e. engan sérstakan. Þessi mynd er fyrir mig.”