Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Margin Call (Veðkall)

Margin Call (Veðkall)

Mar 19, 2012 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Drama, spenna 2011
  • Lengd: 107 mín.
  • Land: Bandaríkin
  • Texti: Íslenskur
  • Leikstjóri: J.C. Chandor
  • Aðalhlutverk: Zachary Quinto, Stanley Tucci, Jeremy Irons, Demi Moore, Paul Bettany og Kevin Spacey
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 23. mars 2012

EFNI: Fylgst er með lykilfólki í stórum fjárfestingabanka á Wall Street í einn sólarhring síðsumars 2008. Einn starfsmanna uppgötvar nánast fyrir tilviljun að tölurnar ganga ekki upp og bankinn stendur frammi fyrir stórkostlegu hruni. Mun takast að bjarga bankanum frá algjöru þroti og þá á kostnað viðskiptavina hans, eða mun hann falla með keðjuverkandi afleiðingum?

UMSÖGN: Þessi fyrsta mynd J.C. Chandor vísar til atburðanna í Lehman Brothers bankanum síðsumars 2008, en þeir eru taldir einskonar upphafspunktur þess efnahagshruns sem þá hófst og enn sér ekki fyrir endann á. Myndin er með eindæmum spennandi og hrollvekjandi. Tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir handrit og hefur að auki unnið til fjölda verðlauna. Hlaðin lofi gagnrýnenda sem áhorfenda (88% á Rotten Tomatoes).

Bandaríkin, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Margin Call (Veðkall)”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.