Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Pólskir kvikmyndadagar 23.-27. mars

Pólskir kvikmyndadagar 23.-27. mars

Mar 19, 2012 Engin skoðun

Pólskir kvikmyndadagar verða haldnir í Bíó Paradís helgina 23.-27. mars í samvinnu við Pólska konsúlatið á Íslandi. Alls verða sýndar fimm nýjar myndir frá þessu magnaða bíólandi og er aðgangur ókeypis! Allar myndirnar eru með enskum texta.

Dagskrárbækling má skoða hér eða hlaða niður:

MYNDIRNAR ERU:

________________________________________________________________________________

OPNUNARMYND: Little Rose (Różyczka)

Drama. 119 mín. Leikstjóri/Director: Jan Kidawa-Błoński. Aðalhlutverk/Main Cast: Andrzej Seweryn, Magda Boczarska, Robert Wieckiewicz.

Sagan er byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað á sjöunda áratug síðustu aldar og fjallar um hættulegan tilfinningahlaðin háskaleik milli þekkts rithöfundar, ungrar konu hans og ástmanns hennar. Rithöfundurinn hefur gifst ungri og gullfallegri stúlku þrátt fyrir almenna hneykslun á sambandinu vegna aldursmunar og stéttarstöðu. Tilfinningar hans til hennar blinda honum sýn á það sem raunverulega er að gerast. Það sem hann veit ekki er að stúlkan er í tygjum við annan mann og samband þeirra er ekki aðeins ástríðufullt heldur einnig þrungið spennu og leynimakki. Maðurinn starfar hjá leyniþjónustunni og hlutverk stúlkunnar er að komast yfir upplýsingar til að vega að mannorði rithöfundarins. Stúlkan vill bindast þessum ástmanni sínum nánari böndum þrátt fyrir að gera sér grein fyrir því að hún er aðeins verkfæri í þágu leyniþjónustunnar.

A story inspired by true events. Set in the tumultuous 1960s, this is the story of a dangerous emotional game between an acclaimed writer, his beautiful young wife an her lover. A well-known writer (Andrzej Seweryn) has an affair with a beautiful and much younger woman (Magdalena Boczarska). In spite of popular indignation caused by the differences in age, material wealth and social status, he marries this attractive “girl from nowhere”. Blinded by his emotions, he doesn’t suspect that their relationship may not be a coincidence. What he doesn’t know is that his woman has secretly been seeing another man (Robert Więckiewicz), with whom she shares not only a great passion, but also a dangerous intrigue. Engaged in an immoral liaison with a secret agent, she gives him information that is meant to discredit the writer. An erotic fascination with her lover gradually transforms into deeper feelings, although the young woman is aware that she is nothing but an accessory in an organized plot of the secret service.


________________________________________________________________________________

Mother Teresa of Cats (Matka Teresa od kotów)

Drama. 90 mín. Leikstjórn/Director: Paweł Sala. Aðalhlutverk/Main Cast: Ewa Skibińska, Mariusz Bonaszewski , Mateusz Kościukiewicz, Filip Garbacz.

Lögreglan handtekur tvo bræður á sveitagistiheimili frænku þeirra og flytur þá til borgarinnar. Í endurliti fáum við að kynnast hvað vakti fyrir bræðrunum með hinum hroðalega glæp þeirra. Hvernig getur slík illska komið frá drengjum úr góðri fjölskyldu? Teresa móðir þeirra elskar syni sína báða og sýnir Hubert eiginmanni sínum mikla blíðu, en hann er þjakaður af streitu eftir dvöl sína sem hermaður í Írak. Hún aðstoðar tónlistarnemann Evu sem býr á heimilinu og sér um einhverfa dóttur þeirra og hún er jafnframt mikill kattavinur. Eldri bóðirinn, Artur, er heillaður af hugmyndum um vitundarstjórnun og uppfullur af vissu um eigið ágæti. Hann hefur Martin bróður sinn í vasanum og móðurinni grunar ekkert. Valdsýki Artur ágerist eftir því sem heilsu föður þeirra hrakar og brátt kemur að því að þeir bræður láta til skarar skríða…

Police arrest two brothers, Artur and Martin, at their aunt’s provincial motel and escort them to jail in the capital. Unfolding in flashback, the film seeks out the motives for the crime they have committed. How did such irrational evil germinate in boys from a good family? Mother Teresa loves her two sons and sympathizes with her husband Hubert, a professional soldier traumatized by his experiences in Iraq. She helps music student Eva who lives with them and cares for their autistic daughter Jadza, and she is kindhearted to stray cats as well, allowing them to fill up their large apartment. Twenty-two-year-old Artur, fascinated by psychotronics, falls prey to the illusion of his own extraordinariness. He has his younger brother Martin completely under his control and their mother suspects nothing. His sense of superiority is confirmed by his father’s growing impotence, and he scorns the man for investing his retirement bonus foolishly. But the sons’ motives don’t reflect the seriousness of their actions


________________________________________________________________________________

All That I Love (Wszystko, co kocham)

Drama. 100 mín. Leikstjórn/Director: Jacek Borcuch. Aðalhlutverk/Main Cast: Mateusz Kościukiewicz, Jakub Gierszał, Mateusz Banasiuk.

Janek er ungur tónlistarmaður í hafnarborg á tíma fyrstu Samstöðuverkfallanna, herlaga og mikils pólitísks umróts. Faðir hans er herlögreglumaður og gegnum sambönd hans fær Janek æfingahúsnæði fyrir pönksveit sína. Á sama tíma berst hann gegn kúgun stjórnvalda á tjáningar- og skoðanafrelsi. Basia kærasta hans er dóttir Samstöðumanns, sem vill banna dóttur sinni að umgangast Janek vegna faðernisins en þau halda áfram að hittast á laun. Janek sendir lög til virtrar tónlistarhátíðar og er valinn meðal þátttakenda en babb kemur í bátinn þegar pólitískir textar hans eru ritskoðaðir og honum bannað að koma fram. Ritskoðandinn mætir í eigin persónu á hátíðina til að sjá til þess að Janek nái ekki að spilla jafnöldrum sínum með Samstöðutextum sínum en allt kemur fyrir ekki, hátíðin breytist í mikinn Samstöðufund.

All That I Love is a film about a young musician, Janek, in a coastal city of Poland during the early period of the Solidarity strikes, martial law in Poland, manifestations, and general political turmoil. Janek’s father is an official of the local military police, and while he utilizes that connection to secure rehearsal space for his punk band (in the officer’s hall of the police barracks), he rebels against the official repression of lycical freedom and political activism. His love interest, Basia, is the daughter of an active Solidarity member, who initially forbids Basia from seeing Janek due to his governmental connections. They continue to see each other secretly, and their romance inspires Janek to send demos to a prestigious Polish summer music festival. He is selected to play, but his attempt to get his politically sensitive lyrics past the state censor ends badly, and is forbidden from playing. However, at the end-of-year concert, at which the censor turns up personally to attempt to prevent Janek from singing Solidarity-friendly songs to his classmates, turns into a youth celebration of Solidarity.

________________________________________________________________________________

The Christening (Chrzest)

Drama. 80 mín. Leikstjóri/Director: Marcin Wrona. Aðalhlutverk/Main Cast: Tomasz Schuchardt, Wojciech Zieliński, Adam Woronowicz, Natalia Rybicka.

Michal hefur fengið alla drauma sína uppfyllta. Hann á gullfallega konu, Mögdu, sonur hans er nýkominn í heiminn og hann á sitt eigið fyrirtæki. Hann biður gamlan vin sinn, Janek, að gerast guðfaðir sonar síns. En hann hefur fleira í huga. Hann vill jafnframt að Janek fari á fjörurnar við eiginkonuna… Í fyrstu virðast plön Michal ganga eftir en síðan verður æ erfiðara fyrir hann að sætta sig við gang mála. Michal veit að atburðir úr fortíðinni munu elta hann uppi og Janek verður að taka ákvörðun sem hafa mun óafturkræfar afleiðingar.

Michal has what he always dreamed of: a beautiful wife named Magda, a newborn son, his own firm. He chooses an old friend, Janek, to be the godfather of his child. This is just the beginning of Michal’s plan, who asks his friend to take an interest in his wife… At the beginning the plan works out, but it becomes increasingly difficult for Michal to come to terms with it. Michal knows his deeply hidden past will inevitably come back to him, and Janek will have to make a decision, of which he will never forget the consequences.

________________________________________________________________________________

Erratum (Erratum)

Drama. 89 mín. Leikstjóri/Director: Marek Lechki. Aðalhlutverk/Main Cast: Tomasz Kot, Janusz Michałowski , Dorota Pomykała.

Michal 34 ára, starfar sem endurskoðandi og lifir góðu lífi með konu sinni og ungum syni. Rétt fyrir fyrstu altarisgöngu sonarins er hann sendur til heimabæjar síns til að sækja bifreið fyrir yfirmann sinn. Michal ákveður að heimsækja föður sinn í leiðinni, en þeir hafa ekki talast við í mörg ár. Fyrir hvatningu konu sinnar býður hann föður sínum að vera við athöfn sonarins. Faðirinn hafnar boðinu og samtal þeirra endar í rifrildi. Á leið útúr bænum lendir hann í árekstri og verður að dvelja í bænum í nokkra daga. Hann þræðir kunnuglega staði og rekst á gamla vini og kunningja sem hann hefur ekki haft samband við lengi. Sér þvert um geð vaknar ýmislegt innra með honum sem hann hefur kosið að leiða hjá sér. Hversdagslegur skreppitúr á heimaslóðirnar breytist í ferðalag um slóðir þeirra minninga sem legið hafa í dvala.

Michal, aged 34, is leading a prosperous, well-rounded life with his wife and son, a nice apartment, and a job in a large accounting office. Unexpectedly, just before his son’s first communion, Michal is sent by his employer to his home town to pick up a car imported from the USA. He goes reluctantly, hoping the business is carried out quickly. Michal picks up the car, but before leaving town he visits his father, with whom he’s been in bitter conflict for years. At his wife’s request, he invites his father to their son’s first communion. The father rejects the invitation and the conversation ends in a quarrel. After this visit, an upset Michal gets into the car. His plans of a quick return are thwarted on the spot, however. Things take a different turn. There is a car accident and Michal has to stay in town a couple of days longer. He has to wait. As he walks through the city streets, he encounters people he used to be close with, but who he left several years ago; he visits familiar places, so important for him in the past. Something awakens inside him during this trip; something he had long forgotten about. He tries to fight it. A banal trip turns into an emotional journey towards a life he no longer remembered.

Evrópa, Kvikmyndir, Pólland
Engin skoðun á “Pólskir kvikmyndadagar 23.-27. mars”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.