Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Evrópska kvikmyndahátíðin í Reykjavík 16.-25. nóvember

Evrópska kvikmyndahátíðin í Reykjavík 16.-25. nóvember

Nov 13, 2012 1 skoðun

Öllum landsmönnum er boðið að vera við opnun Evrópsku kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík í Bíó Paradís þann 16. nóvember kl. 19. Hægt verður að velja á milli fjögurra mismunandi kvikmynda og einnig verður boðið uppá veitingar. Boðið gildir meðan húsrúm leyfir. Almennt miðaverð á hátíðina er aðeins kr. 500 og hægt verður að kaupa fimm mynda passa fyrir aðeins kr. 2000.

Evrópskir kvikmyndagerðarmenn halda áfram að vera fremstir meðal jafningja þegar kemur að frábærum og áhugaverðum kvikmyndum. Evrópsku kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, sem fram fer í Bíó Paradís dagana 16.-25. nóvember, er ætlað að gefa þverskurð af því besta sem álfan hefur uppá að bjóða í bíói á síðustu misserum.

Hátíðin skiptist í fjóra hluta;

  • Nýjar evrópskar myndir
  • Myndir tilnefndar til Lux verðlauna Evrópuþingsins
  • Myndir sem fjalla um kynbundið ofbeldi (sýndar í samstarfi við UN WOMEN)
  • Þagnarþríleikur Theo Angelopoulos

Alls eru sýndar 11 nýjar og nýlegar myndir á hátíðinni auk hinna þriggja eldri mynda Theo Angelopoulos sem lést fyrr á árinu. Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri mun minnast Angelopoulos sérstaklega á hátíðinni. Hátíðin er haldin í samvinnu Evrópustofu – upplýsingamiðstöðvar ESB, Sendinefndar ESB á Íslandi og Bíó Paradísar. Smærri útgáfa hátíðarinnar verður haldin á Akureyri í byrjun desember á vegum Kvikmyndaklúbbs Akureyrar.

[divider top=”0″]

NÝJAR EVRÓPSKAR MYNDIR

Alpeis (Alpar / Alps)

Grikkland, 2011. Leikstjóri: Giorgos Lanthimos. 93 mín.

Hópur fólks kemur á laggirnar fyrirtæki sem gerir út á að herma eftir látnu fólki í þeim tilgangi að hjálpa ættingjum þess í gegnum sorgarferlið. Mynd eftir hinn unga og efnilega leikstjóra Giorgos Lanthimos sem gerði m.a. myndina Dogtooth árið 2009, en sú mynd var tilnefnd sem besta erlenda myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni. Alps hefur einnig fengið frábærar móttökur gagnrýnenda og vann m.a. til verðlauna fyrir besta handritið á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum auk þess sem hún var tilnefnd sem besta myndin á hátíðinni.

[divider top=”0″]

Le Gamin au vélo (Strákur á hjóli / Kid on a Bike)

Belgía, 2011. Leikstjórar: Jean-Pierre Dardenne og Luc Dardenne. 87 mín.

Ungur drengur er yfirgefin af föður sínum og endar á ríkisreknu unglingaheimili. Hársnyrtir bæjarins ákveður, af eintómri góðmennsku, að leyfa drengnum að gista hjá sér um helgar. Tilnefnd til Golden Globe verðlauna sem besta erlenda myndin. Var einnig tilnefnd sem besta myndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes og hlaut sérstök verðlaun dómnefndar (Grand Prize of the Jury). Þá vann hún til verðlauna fyrir besta handritið á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum auk þess sem hún var tilnefnd í flokkunum besta myndin, besti leikstjórinn og besta leikkonan.

[divider top=”0″]

Cesare deve morire (Sesar verður að deyja / Caesar Must Die)

Ítalía, 2012. Leikstjórar: Paolo Taviani og Vittorio Taviani. 76 mín.

Fangar í hámarksöryggisgæslufangelsi í Róm æfa sig fyrir uppsetningu á leikritinu Júlíus Sesar eftir Shakespeare. Cesare deve morire hlaut verðlaun sem besta myndin (Gullbjörninn) á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á þessu ári og hefur hlotið mikið og almennt lof bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Framlag Ítala til Óskarsverðlaunanna í ár.

[divider top=”0″]

Les seigneurs (Gaurarnir / The Lords)

Frakkland, 2012. Leikstjóri: Olivier Dahan. 97 mín.

Fyrrum fótboltastjarna hefur glatað öllu sökum ólifnaðar. Hann neyðist til að flytja til lítils fiskipláss á norðurströnd Frakklands og tekur að sér að þjálfa fótboltaliðið á staðnum. Eina verksmiðjan í þorpinu og vinnuveitandi flestra íbúanna er komin í greiðslustöðvun, en vinni fótboltaliðið nokkra leiki verður hægt að safna nægu fé til að bjarga verksmiðjunni. Hin fallna stjarna ákveður að leita til nokkurra gamalla félaga sinna til að hjálpa þorpsbúum. Þessi eldfjöruga gamanmynd hefur slegið hressilega í gegn í Frakklandi að undanförnu og einn af leikurum myndarinnar er Omar Sy sem sló svo eftirminnilega í gegn í Untouchables.

[divider top=”0″]

The Deep Blue Sea (Hafið djúpa bláa)

Bretland, 2011. Leikstjóri: Terence Davies. 98 mín.

Myndin gerist um 1950 og segir frá konu bresks dómara og ástarsambandi hennar við flugmann úr konunglega breska flughernum. The Deep Blue Sea hefur fengið frábærar viðtökur gagnrýnenda og var m.a. tilnefnd sem besta myndin á San Sebastián International Film Festival og London Film Festival auk þess sem Rachel Weisz var tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki á London Critics Circle Film Awards og Evening Standard British Film Awards.

[divider top=”0″]

Une vie meilleure (Betra líf – A Better Life)

Frakkland, 2011. Leikstjóri: Cédric Kahn.110 mín.

Yann og Nadia verða ástfangin. Þau gera upp gamla byggingu í París og breyta henna í veitingastað. En hlutirnir fara ekki eins og þau héldu, hár fjármagnskosntaður gerir reksturinn erfiðan og Nadia þarf að taka að sér tímabundna vinnu í Montéal í Kanada til þess að afla aukinna tekna. Hún neyðist til að skilja son sinn, Slimane, eftir hjá Yann. Hlutirnir versna hins vegar til muna þegar Nadia hverfur sporlaust. Leikstjórinn Cédric Kahn var tilnefndur til verðlauna á Kvikmyndahátíðinni í Tokyo og annar aðalleikaranna, Guillaume Canet hlaut verðlaun sem besti leikarinn á Kvikmyndahátíðinni í Róm.

[divider top=”0″]

MYNDIR TILNEFNDAR TIL LUX VERÐLAUNA EVRÓPUÞINGSINS

Crulic – Drumul spre dincolo  (Crulic – ferðin yfirum / Crulic – The Path to Beyond)

Rúmenía, Pólland, 2011. Leikstjóri: Anca Damian. 73 mín.

Teiknuð heimildamynd um Claudio Crulic, rúmenskan mann sem dó í pólsku fangelsi árið 2008 eftir að hafa farið í hungurverkfall til að vekja athygli á máli sínu. Mál Crulic vakti mikla reiði almennings í Rúmeníu og Póllandi á sínum tíma og varð m.a. til þess að utanríkisráðherra Rúmeníu þurfti að segja af sér og þrír pólskir læknar voru ákærðir fyrir alvarlega vanrækslu í starfi.  Crulic – ferðin yfirum hlaut mikla athygli og einróma lof þegar hún kom fyrst fyrir sjónir almennings og hefur síðan sópað til sín á annan tug verðlauna á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn.

[divider top=”0″]

Tabu (Tabú)

Portúgal, 2012. Leikstjóri: Miguel Gomez. 118 mín.

Skapstygg gömul kona, þerna hennar og nágranni sem helgar sig samhjálp búa á sömu hæð í blokk í Lissabon. Þegar gamla konan deyr komast hin tvö á snoðir um leyndarmál úr fortíð hennar; æsilega frásögn um ástir og myrkraverk í Afríku sem minna mjög á gamlar ævintýrakvikmyndir. Þessi glettnislega og angurværa hugleiðing um tímann og kvikmyndirnar hefur fengið nær einróma lof gagnrýnenda. Leikstjórinn segir hana vera um hvernig tíminn líður, um hluti sem hverfa og geta aðeins haldið áfram sem minningar, skynjun og sýnir – eða sem kvikmynd. Tabu var tilnefnd til Gullbjarnarins á síðustu Berlínarhátíð þar sem hún hlaut tvenn verðlaun. Myndin hefur einnig fengið nokkurn fjölda verðlauna og tilnefninga víða um heim.

[divider top=”0″]

L’enfant d’en haut (Barn að ofan / Sister)

Frakkland, 2012. Leikstjóri: Ursula Meier. 97 mín.

Myndin gerist á svissnesku skíðasvæði og fjallar um strák sem styður við bakið á systur sinni með því að ræna frá efnuðum gestum skíðasvæðisins. Barn að ofan er önnur mynd Ursulu Meier í fullri lengd. Fyrri mynd Meier, Home, hlaut afbragðs viðtökur og vann til fjölmargra verðlauna á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum og Barn að ofan er á góðri leið með að bæta árangur hennar.

[divider top=”0″]

MYNDIR UM HEIMILISOFBELDI (Í SAMSTARFI VIÐ UN WOMEN)

Tyrannosaur (Skemmd epli)

Bretland, 2011. Leikstjóri: Paddy Considine. 92 mín.

Þessi magnaða og afar áhrifamikla mynd segir af ekklinum Jósef sem er atvinnulaus og þjakaður af ofbeldishneigð og reiði sem er að leggja líf hans í rúst. Hann þráir ekkert heitar en að breyta lífi sínu en sér ekki hvernig. Jósef kynnist Hönnu sem starfar í búð sem rekin er á vegum hjálparsamtaka í hverfinu. Með þeim takast góð kynni og Jósef byrjar að eygja von um að geta breytt lífi sínu til betri vegar. Hanna virðist heilbrigð og kærleiksrík kona sem iðkar trú sína og vill öllum vel en hún býr yfir þrúgandi leyndarmáli sem gæti orðið til að draga Jósef aftur til fyrri hátta. Tyrannosaur er fyrsta mynd hins kunna breska leikara Paddy Considine (Last Resort, 24hr Party People, In America) og hefur hlotið hátt á þriðja tug verðlauna víða um heim, þar á meðal á Sundance hátíðinni, BAFTA verðlaununum, og British Independent Film Awards. Með aðalhlutverkin fara Peter Mullan og Olivia Colman, sem bæði hafa verið marglofuð og verðlaunuð fyrir frammistöðu sína í myndinni.

[divider top=”0″]

Die Fremde (Hin útskúfaða / When We Leave)

Þýskaland, 2010. Leikstjóri: Feo Aladag. 119 mín.

Umay er ung kona af tyrkneskum uppruna sem berst fyrir því að fá að lifa sjálfstæðu lífi í Þýskalandi gegn vilja fjölskyldu sinnar. Barátta hennar leiðir til mikilla átaka innan fjölskyldunnar og setur líf hennar í hættu. Myndin hefur sópað til sín á fjórða tug verðlauna á fjölmörgum af stærstu og virtustu kvikmyndahátíðum heims. Hún var m.a. valin besta myndin á Þýsku kvikmyndaverðlaununum auk þess sem hún fékk verðlaun fyrir besta handritið, bestu kvikmyndatöku, bestu klippingu, bestu tónlistina og bestu leikkonu (Sibel Kekilli).

[divider top=”0″]

THEO ANGELOPOULOS: ÞRÍLEIKUR UM ÞÖGNINA

Theodoros Angelopoulos (1935-2012) var án nokkurs efa einn merkasti kvikmyndaleikstjóri Evrópu á ofanverðri tuttugustu öldinni. Hann þróaði með sér einstakan myndstíl sem einkenndist af löngum, flóknum en afar nákvæmlega unnum senum. Útkoman var ekki aðeins seiðandi og djúpskreið heldur og sérstaklega áhrifamikil. Leiðarstef í verkum hans voru gjarnan ferðalangar, flóttinn frá heimalandinu og endurkoma, auk sögu Grikklands á tuttugustu öldinni. Þagnarþríleikurinn svokallaði kemur fram um miðbik ferils Angelopoulos. Myndirnar eru Ferðin til Kýþeru (1984), Býflugnabóndinn (1986) og Landslag í þoku (1988). Tvær þær fyrstnefndu eru tragískar lýsingar á hugsjónafólki sem glatað hefur málstaðnum, sú síðasta lýsir örvæntingarfullu Grikklandi sem ákaft leitar sáluhjálpar annarsstaðar.

[divider top=”0″]

Taxidi sta Kythira (Ferðin til Kýþeru / Voyage to Cythera)

Grikkland, 1984. Leikstjóri: Theo Angelopoulos. 120 mín.

Gamall kommúnisti snýr aftur til Grikklands eftir 32 ára dvöl í Sovétríkjunum. Staðan í Grikklandi er hins vegar alls ekki eins og hann hafði vonast eftir. Ferðin til Kýþeru vann til verðlauna fyrir besta handrit á kvikmyndahátíðinni í Cannes auk þess sem hún fékk sérstaka viðurkenningu kvikmyndagagnrýnenda (FIPRESCI Prize) á hátíðinni. Þá var hún jafnframt tilnefnd sem besta myndin.

[divider top=”0″]

O melissokomos (Býflugnabóndinn / The Beekeeper)

Grikkland, 1986. Leikstjóri: Theo Angelopoulos. 122 mín.

Býflugnabóndinn Spiros ferðast frá Norður-Grikklandi til Suður-Grikklands með býflugurnar sýnar til að mæta vorinu. Myndin hlaut frábærar viðtökur gagnrýenda á sínum tíma og var m.a. tilnefnd sem besta myndin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

[divider top=”0″]

Topio stin omichli (Landslag í þoku / Landscape in the Mist)

Grikkland, 1988. Leikstjóri: Theo Angelopoulos. 127 mín.

Vegamynd um leit tveggja ungmenna að föður sínum sem á, samkvæmt móður þeirra, að eiga heima í Þýskalandi. Þráhyggja barnanna gagnvart þessari föðurímynd sinni leiðir þau hins vegar ekki aðeins í ferðalag um Grikkland heldur einnig að mörkum æsku og fullorðinsára.Landslag í þoku er margverðlaunuð mynd sem vann m.a. til verðlauna sem besta kvikmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum og á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Belgía, Bretland, Evrópa, Frakkland, Grikkland, Ítalía, Kvikmyndir, Pólland, Portúgal, Rúmenía, Þýskaland

Ein skoðun to “Evrópska kvikmyndahátíðin í Reykjavík 16.-25. nóvember”

  1. Evrópskir kvikmyndadagar á Akureyri | Kvikyndi says:

    […] framhald REFF – Evrópsku kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík sem er nýlokið og fræðast má um hér. En það eru vinsælustu myndirnar á þeirri hátíð sem við fáum sendar […]

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.