Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Draumurinn um veginn, 5. hluti: Að heiman heim

Draumurinn um veginn, 5. hluti: Að heiman heim

Nov 14, 2012 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2012
  • Lengd: 108 mín.
  • Land: Ísland
  • Stjórnandi: Erlendur Sveinsson
  • Kvikmyndataka: Sigurður Sverrir Pálsson
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd: 16.-22. nóvember 2012

EFNI: Síðasti hluti myndaflokksins um pílagrímsgöngu rithöfundarins Thors Vilhjálmssonar eftir hinum forna Jakobsvegi. Myndin hefst á dýradegi eða Kristslíkamahátíð í Benediktínaklaustrinu í Samos, sem er lítill bær í Galisíuhéraði í Norð-Vestur hluta Spánar. Thor er kominn til heilsu á ný eftir veikindin sem hrjáðu hann í 4. hlutanum og getur nú fylgt eftir ásetningi sínum um að ganga til grafar Jakobs postula í dómkirkjunni í Santiago de Compostela. Inn í gönguna fléttast tengsl hans við aðra pílagríma og íbúa Galisíu, minningabrot að heiman auk þess sem kaflar úr skáldsögu hans, Morgunþulu í stráum (1998), lifna við ásamt textum úr íslenskum fornritum. En þar með er ekki öll sagan sögð, því þar kemur að turnar dómkirkjunnar í Santiago blasa við sjónum skáldsins og menningarpílagrímsins ofan af Hæð fagnaðarins (Monde del Gozo) eins og hún nefnist í íslenskri miðaldaþýðingu. En þar með er ekki öll sagan sögð, því þar kemur að turnar dómkirkjunnar í Santíago blasa við sjónum menningarpílagrímsins ofan af Hæð fagnaðarins (Monde del Gozo) eins og hæð þessi nefnist í íslenskri miðaldaþýðingu og við tekur inngangan í Santiagoborg, sem á öllum öldum hefur haft djúpstæð áhrif á tilfinningalíf pílagríma.

DR5 StúfurBÍÓPAR2 from Erlendur Sveinsson on Vimeo.

Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Draumurinn um veginn, 5. hluti: Að heiman heim”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.