Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Arfur Nóbels (Nobels testamente)

Arfur Nóbels (Nobels testamente)

Nov 27, 2012 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 2012
  • Lengd: 90 mín.
  • Land: Svíþjóð
  • Texti: Íslenskur
  • Leikstjóri: Peter Flinth
  • Aðalhlutverk: Malin Crépin, Björn Kjellman og Leif Andrée
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 30. nóvember 2012

EFNI: Annika Bengtzon (leikin af Malin Crépin) er blaðamaður á sænska dagblaðinu Kvällspressen í Stokkhólmi. Hún skrifar aðallega um glæpamál en tekur líka að sér önnur verkefni þegar svo ber undir.

Kvöld eitt þiggur Annika boð um að mæta til hátíðarfagnaðar í tilefni af nýjustu Nóbelsverðlaunaafhendingunni. Bæði henni og gestum samkvæmisins er mikið brugðið þegar skotárás er gerð í salnum og tvær manneskjur liggja í valnum.

Þar sem Annika varð sjálf vitni að árásinni er henni bannað að skrifa um það en grunar strax að málið sé flóknara en það sýnist. Henni þykir líklegt að í raun hafi árásin átt að beinast að henni og að þau sem létu lífið hefðu í raun dáið fyrir mistök. Og eftir því sem hún færist nær sannleikanum því betur áttar hún sig á því að þar með er líf hennar sjálfrar í hættu …

UMSÖGN: Frá framleiðendum Millenium-þríleiks Stiegs Larsson kemur nýr hágæða spennutryllir sem er byggður á metsölubók sænska rithöfundarins Lizu Marklund, Nobels testamente.

Kvikmyndir, Svíþjóð
Engin skoðun á “Arfur Nóbels (Nobels testamente)”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.