Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Take This Waltz

Take This Waltz

Dec 10, 2012 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 2011
  • Lengd: 116 mín.
  • Land: Kanada
  • Texti: Íslenskur
  • Leikstjóri: Sarah Polley
  • Aðalhlutverk: Michelle Williams, Luke Kirby, Seth Rogen og Sarah Silverman
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 20. desember 2012

EFNI: Þegar Margot (Michelle Williams), 28, hittir Daniel (Luke Kirby), fljúga gneistar á milli. En Margot verður að hemja sig því hún er hamingjusamlega gift Lou (Seth Rogen), Margot kemst að því að Daniel býr hinumegin við götuna og þetta setur hina daglegu rútínu í uppnám. Þau Daníel eiga marga leynifundi saman þetta heita sumar og þrá þeirra eftir hvort öðru vex í réttu hlutfalli við stillinguna sem þau verða að sýna. Take this Waltz er sjóðandi heit, björt og lítrík eins og ávaxtaskál en einnig meinfyndin skoðun á því hvernig langtímasambönd fara með ást, kynlíf og þá mynd sem við höfum af okkur sjálfum.

UMSÖGN: Þetta er önnur myndin sem hin hæfileikaríka leikkona Sarah Polley leikstýrir, en fyrri mynd hennar, Away from Her, var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Þessi hefur ekki síður fengið einróma lof og því óhætt að kalla Polley einn eftirtektarverðasta leikstjóra samtímans af yngri kynslóð.

Kanada, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Take This Waltz”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.