Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Arbitrage

Arbitrage

Jan 15, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 2011
  • Lengd: 107 mín.
  • Land: Bandaríkin
  • Texti: Íslenskur
  • Leikstjóri: Nicholas Jarecki
  • Aðalhlutverk: Richard Gere, Susan Sarandon og Brit Marling
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 18. janúar 2013

EFNI: Við hittum fyrir Robert Miller, stjórnanda fjárfestingasjóðs í New York, á sextugsafmæli hans. Hann virðist um flest vera tákngervingur velgengni í viðskiptum sem fjölskyldulífi. En undir yfirborðinu leynist napur veruleikinn. Miller er með allt niðrum sig en er að reyna að selja fyrirtæki sitt til stórs banka áður en svindlstarfsemi hans er afhjúpuð. Hann leynir jafnframt stöðunni fyrir konu sinni og dóttur, sem á að taka við fyrirtækinu. Eins og þetta sé ekki nóg stendur hann jafnframt í framhjáhaldi með frönskum listaverkasala. Um það bil sem honum er að takast að ganga frá sölu fyrirtækisins verður skelfileg uppákoma og dómgreindarbrestur hans virðist ætla að verða honum að falli. Miller leitar til gamals vinar með vafasama fortíð um að bjarga því sem bjargað verður.

UMSÖGN: Hörkuspennandi og magnaður þriller sem er frumraun leikstjórans Nicholas Jarecki og hefur fengið afbragðs dóma og viðtökur.

Bandaríkin, Evrópa, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Arbitrage”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.