Holy Motors
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2012
- Lengd: 115 mín.
- Land: Frakkland
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Leos Carax
- Aðalhlutverk: Denis Lavant, Edith Scob, Kylie Minogue og Eva Mendes
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 1. febrúar 2013
EFNI: Holy Motors segir frá Óskari, skuggalegum karakter sem ferðast frá einu lífi til annars. Hann er til skiptis viðskiptajöfur, leigumorðingi, betlari, skrímsli, fjölskyldumaður … Í myndinni gætir áhrifa frá leikstjórum á borð við David Lynch og Fritz Lang og fantastísk einkenni Kafka, Aldous Huxley og Lewis Carrol svífa yfir vötnum.
UMSÖGN: Græna ljósið kynnir Holy Motors eftir snillinginn Leos Carax. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans í fullri lengd frá því hann sendi frá sér Pola X árið 1999, sem er erótískt drama. Í Holy Motors fær Carax til liðs við sig stórstjörnurnar Eva Mendez og Kylie Minogue. Myndin vakti mikil viðbrögð á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí 2012, gagnrýnendur voru yfir sig hrifnir og á frumsýningunni var mikið fagnað. Óhætt er að kalla þetta einn magnaðasta kvikmyndaviðburð ársins.