Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Holy Motors

Holy Motors

Jan 27, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 2012
  • Lengd: 115 mín.
  • Land: Frakkland
  • Texti: Íslenskur
  • Leikstjóri: Leos Carax
  • Aðalhlutverk: Denis Lavant, Edith Scob, Kylie Minogue og Eva Mendes
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd frá: 1. febrúar 2013

HolyMotorsMidiEFNI: Holy Motors segir frá Óskari, skuggalegum karakter sem ferðast frá einu lífi til annars. Hann er til skiptis viðskiptajöfur, leigumorðingi, betlari, skrímsli, fjölskyldumaður … Í myndinni gætir áhrifa frá leikstjórum á borð við David Lynch og Fritz Lang og fantastísk einkenni Kafka, Aldous Huxley og Lewis Carrol svífa yfir vötnum.

UMSÖGN: Græna ljósið kynnir Holy Motors eftir snillinginn Leos Carax. Þetta er fyrsta mynd leikstjórans í fullri lengd frá því hann sendi frá sér Pola X árið 1999, sem er erótískt drama. Í Holy Motors fær Carax til liðs við sig stórstjörnurnar Eva Mendez og Kylie Minogue. Myndin vakti mikil viðbrögð á Cannes kvikmyndahátíðinni í maí 2012, gagnrýnendur voru yfir sig hrifnir og á frumsýningunni var mikið fagnað. Óhætt er að kalla þetta einn magnaðasta kvikmyndaviðburð ársins.

Evrópa, Frakkland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Holy Motors”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.