Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Svartir sunnudagar: Saló, or The 120 Days of Sodom

Svartir sunnudagar: Saló, or The 120 Days of Sodom

Feb 05, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Leikin mynd, 1975
  • Upprunalegt heiti: Salò o le 120 giornate di Sodoma
  • Lengd: 116 mín.
  • Land: Ítalía
  • Leikstjóri: Pier Paolo Pasolini
  • Aðalhlutverk: Paolo Bonacelli, Giorgio Cataldi, Umberto Paolo Quintavalle
  • Dagskrá: Svartir sunnudagar
  • Sýnd: 10. febrúar 2013
Plakatið gerði Þrándur Þórarinsson fyrir Svarta sunnudaga. Uppsetning: Ómar Hauksson.

Plakatið gerði Þrándur Þórarinsson fyrir Svarta sunnudaga. Uppsetning: Ómar Hauksson.

Þessa dagana standa Svartir sunnudagar fyrir kvikmyndahátíðinni Forboðinn febrúar, sem einbeitir sér að myndum sem hafa verið, eða eru enn bannaðar í sumum löndum. Næsta mynd á Forboðnum febrúar er hin ítalska Saló: O le 120 giornate di Sodoma eftir Pier Paolo Pasolini. Myndin er byggð á skáldsögunni 120 dagar í Sódómu eftir Marquis De Sade, sem uppi var á átjándu öld og fyrirbærið Sadismi, er kennt við.

EFNI: Í Saló heimfærir Pasolini skáldsögu De Sade uppá seinni heimstyrjöldina á Ítalíu. Undir stríðslok höfðu fasistar hernumið svæði sem kallaðist Saló. Þar hegðuðu herforingjarnir sér eins og kóngar og eyddu dögunum í að pynta fólk og svala sínum lægstu fýsnum. Saló gerist að mestu í höll sem hertekin hefur verið af mönnum Mussolinis og segir frá fjórum hershöfðingjum sem sameinast í að upplifa hið fullkomna andlega gjaldþrot á kostnað saklausra ungmenna.

UMSÖGN: Saló er mjög ágeng kvikmynd og seint hægt að segja að hún sé hugguleg áhorfs. Hún er talin pólitískasta verk Pasolinis og má líta á hana sem uppgjör hans við ítalska fasismann, nokkuð sem ítalir áttu eftir að gera og hafa sumpart ekki gert enn.

Myndin var bönnuð víðast hvar í heiminum og er enn bönnuð t.a.m. í Ástralíu. Þegar teknir eru saman listar yfir óhugnanlegustu myndir sem gerðar hafa verið hefur Saló ávallt verið einhversstaðar á topp 10.

Hér er líklega um að ræða fyrsta skipti sem Saló eftir Pasolini er sýnd í íslensku kvikmyndahúsi og verður sýningin haldin í Bíó Paradís, sunnudagskvöldið 10. febrúar kl. 20.

Svartir sunnudagar í Bíó Paradís

Sigurjón Kjartansson, Hugleikur Dagsson og Sjón standa fyrir Svörtum sunnudögum í Bíó Paradís. Páll Óskar Hjálmtýsson hefur ennfremur bæst í hópinn.

Þeir Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) hafa stofnað cult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, sem mun standa fyrir vikulegum kvikmyndasýningum í Bíó Paradís á sunnudagskvöldum í vetur. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar cult myndir séu sýndar í reykvískum bíósal a.m.k. einu sinni í viku. Eftir mikla rekistefnu ákváðu þeir þremenningar að sunnudagskvöld væru bestu kvöldin fyrir svona nokkuð, enda hafa sunnudagskvöld fest sig í sessi í bíómenningu okkar sem aðal-bíókvöldin. Auk þess hefði verið kjánalegt að vera með sýningar t.d. á þriðjudögum undir nafninu Svartir sunnudagar.

 

Ítalía, Kvikmyndir, Svartir sunnudagar
Engin skoðun á “Svartir sunnudagar: Saló, or The 120 Days of Sodom”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.