Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
ÞRJÚBÍÓ: City Lights

ÞRJÚBÍÓ: City Lights

Feb 05, 2013 Engin skoðun
  • TEGUND OG ÁR: Leikin, þögul gamanmynd, 1931
  • LENGD: 87 mín.
  • LAND: Bandaríkin
  • LEIKSTJÓRI: Charles Chaplin
  • AÐALHLUTVERK: Charles Chaplin, Virginia Cherrill og Florence Lee
  • DAGSKRÁ: Þrjúbíó, 10. febrúar 2013, kl. 15:00

city_lightsBorgarljósin er talin vera ein af bestu myndum Chaplin á löngum ferli. Flækingurinn verður ástfanginn af blindri blómasölustúlku og ákveður að veita henni sjónina aftur. Þar með ratar hann í ótrúleg og grátbrosleg ævintýri og reynir meðal annars fyrir sér sem hnefaleikari með óvæntum árangri.

Þótt talmyndir væru komnar til sögunnar seint á fjórða áratugnum ákvað Chaplin að hafa myndina þögla með titlum á milli myndskeiða þar sem honum fannst gæði talmyndanna ófullnægjandi enn sem komið var. Hann samdi tónlistina sjálfur, en í henni gætir margs konar áhrifa úr fjölleikahúsum, söngleikjum, tangó og spænskri og ískri þjóðlagatónlist.

Bandaríkin, Kvikmyndir
Engin skoðun á “ÞRJÚBÍÓ: City Lights”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.