Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
BANFF fjallakvikmyndahátíð

BANFF fjallakvikmyndahátíð

Apr 26, 2013 Engin skoðun

Íslenski alpaklúbburinn í samstarfi við Bíó Paradís, Íslenska fjallaleiðsögumenn og 66° Norður kynna hina árlegu BANFF fjallakvikmyndahátíð

Þann 1. og 2. maí verður hátíðin haldin í Bíó Paradís og hefjast sýningar kl. 20:00 Hægt er að kaupa miða á midi.is en til að fá betra verði á bæði kvöldin mælum við sterklega með að mæta í miðasöluna á Hverfisgötu til að tryggja sér miða. Fyrra kvöldið og seinna kvöldið á miði.is.

Á hátíðinni verða sýndar klifurmyndir, skíðamyndir, hjólamyndir og kayakmyndir svo eitthvað sé nefnt. Mikil keyrsla og húmor hafa fylgt þessum sýningum í gegnum árin og má segja að í boði séu um 4 klukkustundir af fjöri á hátíð sem sameinar iðkendur og aðdáendur jaðarsports á Íslandi.

Almennt Félagsmenn Ísalp
Eitt kvöld: 1500 kr. Eitt kvöld: 1300 kr.*
Tvö kvöld: 2200 kr.* Tvö kvöld: 2000 kr.*
* Ef kaupa á miða fyrir bæði kvöldin eða fá klúbbmeðlima afslátt þá þarf að kaupa miðana í miðasölu Bíó paradís, Hverfisgötu 54.

MIÐVIKUDAGURINN 1.MAÍ KL. 20:00 

The Gimp monkeys

Hvað hefur 4 fætur, 3 höfuð og 5 hendur? Klifrarar sem ætla að vera fyrsta fatlaða teymið sem fer upp hinn fræga vegg El Capitan! Mjög skemmtileg og hvetjandi mynd.

Tegund: Klifur

Lengd: 8 mín

Strength in numbers

Stuttmynd um hjólasportið eins og það gerist best, downhill og stökk eru meðal efnis.

Tegund: Fjallahjól

Lengd: 15 mín

Crossing the ice

Tveir Ástralskir ferðalangar ákveða að ganga fyrstir á suðurpólinn án mikillar ferðakunnáttu og til baka en lenda í óvæntu kapphlaupi við norðmann sem stefnir á sama markmið.

Tegund: Ævintýri

Lengd: 44 mín

Hlé

The Denali experiment

Frægir fjallamenn og skíðamenn sameinast. Sage Cattabriga-Alosa og Lucas Debari sem eru frægir skíða- og brettamenn slást í för með Conrad Anker ofl. um að klifra Denali og skíða svo niður.

Tegund: Fjallaskíði

Lengd: 16 mín

Lacon de Catalonia

Hjólastökk, stutt mynd um stökk og trikk bæði á fjallahjólum og mótorkross hjólum í brautum.

Tegund: Hjól

Lengd: 5 mín

Wanna ride?

Skíðað niður há fjöll með fallhlíf á bakinu, farið fram af klettum, milli steina og allt sem fjallið hefur uppá að bjóða.

Tegund: Skíða paraglide

Lengd: 3 mín

Reel rock 7: La Dura Dura

Chris Sharma þarf vart að kynna fyrir neinum sem eru í klifursportinu en hann hefur um árabil verið að finna og leggja erfiðustu klifurleiðir heims.

Tegund: Klifur

Lengd: 28 mín

 

FIMMTUDAGURINN 2.MAÍ KL. 20:00

Industrial Revolutions

Danny MacAskill hefur fundið nýjan leikvöll á hjólinu sínu en að þessu sinni leggur hann brautir á yfirgefnu iðnaðarsvæði þar sem nóg af járni er til staðar.

Tegund: Hjól

Lengd: 5 mín

Being there

Fjallaskíðun og stökk hjá frændum okkar í Noregi. Lofoten og nágrenni koma m.a. við sögu.

Tegund: Skíði

Lengd: 14 mín

Reel rock 7: Wide Boyz

Off-width klifur er þegar sprungur eru of breiðar til að geta notað eina hendi í einu og eru sumir búnir að þróa með sér tækni til að takast á við slík verkefni.

Tegund: Klifur

Lengd: 12 min

On thin sea ice 2

Sumir leika sér að eldinum, aðrir leika sér að ísnum.

Tegund: Skautar

Lengd: 2 min

The Dream factory

Teton Gravity Research (TGR) hafa um árabil búið til skemmtilegar og flottar extreme skíðamyndir.

Tegund: Skíði

Lengd: 27 min

Hlé

Fow hunters

Nokkrir kayakræðarar fara saman til Nýja Sjálands að róa niður fossa og straumvatn.

Tegund: Kayak

Lengd: 9 mín

The Rollerman

Danny Strasser er mættur aftur til leiks og er að þessu sinni búinn að útbúa sinn eigin “hjólagalla”.

Tegund: Ísklifur

Lengd: 3 mín

On the road – Skiing the void

Frásögn um fjallaskíðun í suður Ameríku.

Tegund: Skíði/saga

Lengd: 7 mín

Lily shreds trailside

Suma vini er einfaldlega ekki hægt að skilja eftir þegar farið er í hjólatúr.

Tegund: Hjól

Lengd: 3 mín

Reel rock 7: Honnold 3.0

Alex Honnold þarf vart að kynna Klifrurum en hann þarf alltaf að toppa sjálfan sig af og til.

Tegund: Fjölbreytt

Lengd: 33 mín

Fréttir/pistlar, Ísland
Engin skoðun á “BANFF fjallakvikmyndahátíð”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.