Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
To the wonder

To the wonder

Oct 14, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Drama, rómans
  • Lengd: 112 mín
  • Land: Bandaríkin
  • Leikstjóri: Terrence Malick
  • Aðalhlutverk: Ben Affleck, Olga Kurylenko, Javier Bardem
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd: 25. október

Efni: To the Wonder er nýjasta mynd leikstjórans og handritshöfundarins Terrence Malick sem gerði m.a Badlands, Days of Heaven, The Thin Red Line og nú síðast The Tree of Life. Í aðalhlutverkum eru þau Ben Affleck, Olga Kurylenko, Javier Bardem og Rachel McAdams og er óhætt að segja að þau sýni öll á sér nýjar hliðar í túlkun sinni á óvenjulegum persónum við óvenjulegar aðstæður.

Hér segir frá þeim Neil og Marinu sem hittast fyrst í París og verða yfir sig ástfangin hvort af öðru. Svo fer að Neil býður Marinu að koma með sér á heimaslóðir sínar Í Oklahoma þar sem sérkennileg vandræði byrja fljótlega að láta á sér kræla. Við kynnumst prestinum Quintana sem strögglar í trúnni og þegar vinkona Neils úr fortíðinni blandast inn í málin tekur atburðarásin óvenjulega stefnu sem spurning er hvort leiði til góðs eða ills …

To the Wonder var tilnefnd til Gullna ljónsins á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.

Bandaríkin, Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “To the wonder”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.