Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Svartir Sunnudagar: Videodrome

Svartir Sunnudagar: Videodrome

Oct 15, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Sci- fi, 1983
  • Lengd: 87 mín
  • Land: Kanada / Bandaríkin
  • Leikstjóri: David Cronenberg
  • Aðalhlutverk: James Woods, Deborah Harry, Sonja Smits
  • Dagskrá: Svartir Sunnudagar
  • Sýnd: 20. október – í nýrri stafrænni snilld og nýju hljóðkerfi kl 20:00.

Efni:  Svartir Sunnudagar hefja vetrardagskrána á meistaraverkinu og kult klassíkinni Videodrome í leikstjórn Davids Cronenberg, myndin er svo sannaralega súrealísk útfærsla á hugmyndinni um hvernig áhrif fjölmiðlar hafa á líf fólks. Myndin er sýnd 20. október kl 20:00 í stafrænni snilld og nýju hljóðkerfi í Bíó Paradís! Hér er hægt að kaupa miða á midi.is

Max Renn (James Woods) er eigandi lítillar sjónvarpsstöðvar. Einn daginn rekst hann fyrir tilviljun á þáttinn Videodrome. Þátturinn snýst um pyntingar og morð en einhverra hluta vegna verður Max alveg heillaður og reynir að fá leyfi fyrir því að sýna hann á sjónvarpsstöðinni sinni. Hann kemst að því að þátturinn er í raun tilraunarútsending leynilegrar stofnunar til að heilaþvo áhorfendur og að auki veldur útsendingin heilaæxli sem leiðir til þess að Max fer að sjá ofsjónir. Ekki líður á löngu þar til hann hættir að geta greint á milli raunveruleikans og ofsjónanna. Myndin á svo sannarlega heima á stóra hvíta tjaldinu! Ekki missa af opnunarmynd Svartra Sunnudaga!

Bandaríkin, Kanada, Kvikmyndir, Svartir sunnudagar
Engin skoðun á “Svartir Sunnudagar: Videodrome”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.