Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Evrópskir kvikmyndadagar í annað sinn á Akureyri – frítt í bíó

Evrópskir kvikmyndadagar í annað sinn á Akureyri – frítt í bíó

Oct 21, 2013 Engin skoðun

Evrópskir kvikmyndadagar verða nú haldnir í annað sinn á Akureyri og hefjast 24. október. Það er kvikmyndaklúbburinn KvikYndi sem stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við Evrópustofu, Sambíó Akureyri og Bíó Paradís. Allar myndirnar eru með íslenskum texta, og ein með enskum texta . Ókeypis aðgangur á sýningarnar á meðan húsrúm leyfir en hver mynd er aðeins sýnd einu sinni.

Sýndar verða fjórar myndir sem segja má að sé brot af því besta frá Evrópskri kvikmyndahátíð sem haldin var í Bíó Paradís fyrir skömmu. Evrópsk Kvikmyndahátíð 2013 gekk vonum framar í Bíó Paradís í ár, en yfir 2000 bíógestir sóttu hátíðina heim. Hátíðin er haldin á vegum Evrópustofu – Upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi í samstarfi við Bíó Paradís.

„Evrópskir kvikmyndagerðarmenn eru fremstir meðal jafningja í hinum fjölbreytilega heimi kvikmyndanna og við erum afar stolt af því að geta boðið Akureyringum að sjá nokkrar af nýjustu og ferskustu evrópsku myndunum,“ segir Arnar Már Arngrímsson, formaður KvikYndis og bætir því við að myndirnar séu sérstaklega valdar með fjölbreytileikann í huga en einnig séu allar myndirnar margverðlaunaðar á ýmsum kvikmyndahátíðum.

Hátíðin hefst með viðhöfn með sýningu hinnar margverðlaunuðu belgísk/hollensku myndar The Broken Circle Breakdown sem farið hefur sigurför um Evrópu, hún vann áhorfendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á árinu, vann til tveggja verðlauna á kvikmyndahátíðinni Tribeca og er jafnframt tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013. Allir eru velkomnir á opnunarsýninguna sem fer fram fimmtudaginn 24. október og hefst með fordrykk kl. 19:15. Hinar myndirnar þrjár verða svo sýndar yfir helgina kl. 18, föstudag, laugardag og sunnudag.

Dagskrá Evrópskra kvikmyndadaga á Akureyri:

Fimmtudagur 24. okt. kl. 20:00


The Broken Circle Breakdown (Belgía / Holland 2012)
111 MÍN. – ÍSLENSKUR TEXTI.
LEIKSTJÓRI: Felix Van Groeningen.
AÐALHLUTVERK: Veerle Baetens, Johan Heldenbergh, Nell Cattrysse.
The Broken Circle Breakdown er nýjasta mynd leikstjórans Felix van Groeningen. Myndin er byggð á vinsælu samnefndu leikriti eftir Johan Heldenbergh og Mieke Dobbels og segir sögu Elise og Didier, tveggja mjög svo ólíkra einstaklinga sem kynnast fyrir tilviljun. Þau verða ástfangin, gifta sig og Elise verður óvænt ólétt. Þegar barn þeirra greinist með ólæknandi sjúkdóm reynir á samband þeirra. Myndin hefur farið sigurför um Evrópu og meðal annars hlotið verðlaun fyrir bestu evrópsku myndina af Europa Cinemas Label og áhorfendaverðlaun Berlinale 2013. Myndin er tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013.
Stikla hér á Youtube

Föstudagur 25. okt. kl. 18:00


Oh Boy (Þýskaland 2012)
85 MÍN – ÍSLENSKUR TEXTI.
LEIKSTJÓRI: Jan Ole Gerster.
AÐALHLUTVERK: Tom Schilling, Katharina Schüttler, Justus von Dohnányi.

Oh Boy er margverðlaunuð þýsk grínmynd frá 2012 og er frumraun leikstjórans Jan Ole Gerster. Myndin er svarthvít og segir frá sólarhringi í lífi Niko, ungs manns sem er atvinnulaus og hættur í námi, þar sem hann rekur stefnulaust um götur Berlínar og allt virðist ganga á afturfótunum. Myndin hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum, meðal annars virtustu verðlaun þýska kvikmyndaiðnaðarins, Lola verðlaunin, 2013 fyrir bestu myndina, besta handrit, besta leikara í aðalhlutverki (Tom Schilling), besta aukaleikara (Michael Gwisdek) og bestu kvikmyndatónlistina. Myndin er tilnefnd til áhorfendaverðlauna Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2013.

Laugardagur 26. okt. kl. 18:00


Hunang (Miele) (Frakkland / Ítalía 2013)
100 MÍN – ENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: Valeria Golino.
AÐALHLUTVERK: Jasmine Trinca, Carlo Cecchi, Libero De Rienzo.

Irene býr ein og lifir heldur einangruðu lífi. Hún vinnur við aðhlynningu dauðvona fólks og aðstoðar það m.a. með lyfjagjöfum. Dag einn þá gefur hún sjúklinginum Grimaldi sem er nýlagstur inn of stóran lyfjaskammt til þess eins að sannreyna það að að hann sé í raun og veru langt frá því að vera veikur. Samband Irene og Grimaldi er þrungið spennu og þróast á þann veg að líf hennar verður aldrei samt. Myndin hlaut verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2013. Hún er einnig tilnefnd til Lux verðlaunanna árið 2013.

Sunnudagur 27. okt. kl. 18:00


Kvöl (Child‘s Pose) (Rúmenía 2012)
112 MÍN – ÍSLENSKUR TEXTI
LEIKSTJÓRI: Călin Peter Netzer.
AÐALHLUTVERK: Luminita Gheorghiu, Bogdan Dumitrache, Natasa Raab.

Kvöl er rúmensk kvikmynd eftir leikstjórann Călin Peter Netzer. Myndin segir sögu Corneliu, stjórnsamrar móður sem sér sér leik á borði til að ná stjórn á fullorðnum syni sínum eftir að hann er ákærður fyrir manndráp. Myndin var frumsýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín þar sem hún hlaut hin virtu Golden Bear verðlaun árið 2013.

EFFI, Fréttir/pistlar, Ísland, Uncategorized
Engin skoðun á “Evrópskir kvikmyndadagar í annað sinn á Akureyri – frítt í bíó”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.