Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Svartir Sunnudagar: The Shining

Svartir Sunnudagar: The Shining

Oct 28, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Horror, 1980
  • Lengd: 113 mín
  • Land: Bretland /Bandaríkin
  • Tungumál: Enska
  • Leikstjóri: Stanley Kubrick
  • Aðalhlutverk: Jack Nicholson, Shelley Duvall, Danny Lloyd
  • Dagskrá: Svartir Sunnudagar
  • Sýnd: 3. nóvember kl 20:00 – í bestu mögulegu hljóð- og myndgæðum (DCP sýning
  • Hér er hægt að kaupa miða á midi.is

Efni:  Hugsaðu um hinn mesta hrylling sem þú getur ímyndað þér. Er það skrímsli eða geimvera? Eða er það banvænn faraldur? Eða er það hin meistaralega kvikmynd Stanley Kubrick The Shining, þar sem hræðslan við dauðdagann stafar af ógnandi fjölskyldumeðlimi, sem þú hefðir átt að geta treyst á? The shining í leikstjórn Stanley Kubrick og er byggð á sögu Stephens King, og fjallar um Jack Torrance (Nicholson) sem fær það verkefni að sjá um risastórt fjallahótel um veturinn á meðan hótelið er autt ásamt eiginkonu og syni. Stórkostlegur leikur, áhrifarík sviðsmynd og draumkennd kvikmyndataka leiða áhorfandann í gegn um vofveiflega atburðarás. Hefur Jack verið á þessu hóteli áður? Sturlun og drápseðli, draugalegt tímaflakk og stórkostlegur leikur einkenna kvikmyndina The Shining, sem fær hárin svo sannarlega til að rísa.

Ekki missa af The Shining í bestu mögulegu hljóð – og myndgæðum í Bíó Paradís sunnudaginn 3. nóvember kl 20:00.

 

 

Bandaríkin, Bretland, Kvikmyndir, Svartir sunnudagar
Engin skoðun á “Svartir Sunnudagar: The Shining”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.