Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Ál öldin – Átaksvika Landverndar

Ál öldin – Átaksvika Landverndar

Nov 21, 2013 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Heimildamynd, 2013
  • Lengd: 90 mín
  • Land: Austurríki
  • Texti: Enskur
  • Leikstjóri og handrit: Bert Ehgartner
  • Dagskrá: Sérsýning miðvikudaginn 27. nóvember kl 18:00

Efni: Bíó Paradís í samstarfi við Landvernd sýna mynd Berts Ehgartners, Die Akte Aluminium, eða Álöldina. Í myndinni er rakin saga álsins, vinnsla þess og áhrif á náttúru og heilsu fólks. Magn áls í lífi nútíma fólks er meira en við kannski gerum okkur grein fyrir og ál leynist á fleiri stöðum en eingöngu í áldósum. Snyrtivörur, matur og lyf eru meðal þeirra hluta í okkar daglega lífi sem innihalda ál. Í mynd Ehgartners eru aukaverkanir áls á líkama okkar skoðaðar og greint frá nýlegum rannsóknum sem benda til þess að ál megi tengja við Alzheimer, brjóstakrabbamein og matarofnæmi. Áhrif álvinnslu á náttúruna eru einnig mikil og er allt framleiðsluferlið rakið í myndinni. Álöldin er afar áhugaverð heimildamynd um vinnslu, notkun og áhrif áls sem er engum óviðkomandi. Sýningin er hluti af átaksviku Landverndar.

Hér er hægt að kaupa miða á midi.is

Austurríki, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Ál öldin – Átaksvika Landverndar”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.