Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Örmyndahátíð í Bíó Paradís 1. mars

Örmyndahátíð í Bíó Paradís 1. mars

Feb 11, 2014 Engin skoðun

Örvarpið er örmyndahátíð RÚV á netinu og vettvangur fyrir upprennandi, skapandi og framsækið fólk í kvikmyndalist. 13 örmyndir hafa verið birtar á internetinu sem hægt er að sjá hér: www.ruv.is/orvarpid. Hátíðin er ætluð öllum sem áhuga hafa á kvikmyndalist, reyndum sem óreyndum, ungum sem öldnum.

Laugardaginn  1. mars kl. 18.00 mun Örvarpið teygja út anga sína í bíó og halda örmyndahátíð í Bíó Paradís.

Þar verða sýndar þær 13 myndir fengu birtingu á netinu. Einnig verður 10 sérvöldum örmyndum gerð skil.

Örmynd ársins verður svo valin af valnefnd og áhorfendum og verða verðlaun í boði.

Fylgist með hér á www.ruv.is/orvarpid og á Facebook síðu Örvarpsins: https://www.facebook.com/orvarpid

Fréttir/pistlar, Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Örmyndahátíð í Bíó Paradís 1. mars”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.