Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
RISE Fluguveiði kvikmyndahátíð 2014

RISE Fluguveiði kvikmyndahátíð 2014

Mar 04, 2014 Engin skoðun

rise_3Hin árlega RISE fluguveiði kvikmyndahátíð verður haldin í Bíó Paradís fimmtudagskvöldið 6. mars n.k. Þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin og af því tilefni verður sett upp lítil veiðisýning í anddyri Bíó Paradísar sama kvöld, þann 6. mars.

Aðstandendur hátíðarinnar leigðu allt húsið þetta kvöld og því munu hefðbundnar sýningar falla niður þennan dag. Húsið opnar kl. 18:00 en sjálf kvikmyndahátíðin hefst kl. 20:00.

Dagskrá RISE 2014

Enginn verður svikinn af dagskránni í ár en eins og undanfarin ár kemur aðalmynd hátíðarinnar úr smiðju Gin-Clear media og að þessu sinni er það myndin LEVIATHAN sem sýnir okkur þá stórfiska sem fluguveiðimenn heimsins eltast við.

Aðrar myndir eru TRIBUTARIES en sú mynd hefur sérstaka þýðingu fyrir íslenska veiðimenn því hún var að hluta til tekin upp hér á landi og segir frá þremur leiðsögumönnum sem starfa hver í sínu landi. Einn þeirra er Sigurður Héðinn sem oft er nefndur Siggi Haugur.

Svo er það BLACKWATER en um þá mynd má segja að sé sjálfstætt framhald myndarinnar Devils Gold og sýnir ferðalag fluguveiðimanna í frumskógum Bólivíu í leit af Golden Dorado.

Síðast en ekki síst er það myndin BLOODKNOT sem framleidd er af tvíburabræðrum sem báðir eru miklir fluguveiðimenn og sýnir veiði á austurströnd Bandaríkjanna.

Miðapantanir

Miðasala á RISE Fluguveiðikvikmyndahátíð 2014 fer fram í Veiðivon Mörkinni 6 og hófst hún þann 10. febrúar. Miðaverð verður lækkað í ár frá fyrri árum og verður kr. 2.000,-

Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst til rise@icelandangling.com eða með því að senda skilaboð í gegnum Facebook síðu RISE: www.facebook.com/risekvikmyndahatid eða hreinlega hringja í síma 568 7090.

Veiðisýning

Haldin verður veiðisýning á undan hátíðinni þar sem margir góðir gestir verða með sínar vörur til sýnis. Veiðisýningin verður nánar auglýst síðar því enn eru gestir að staðfesta komu sína.

Styrktaraðilar

Til þess að mögulegt sé að lækka miðaverð stólum við á styrktaraðila okkar og erum við þeim þakklát. Þeir eru: Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Enski Barinn, Fjarðarkaup, Hafið – Fiskverslun, Hreggnasi, Kírópraktorstofa Íslands, Stangveiðifélag Reykjavíkur, Lax-á, Veiðiþjónustan Strengir, Veiðivon og Veiðikortið.

Fréttir/pistlar, Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “RISE Fluguveiði kvikmyndahátíð 2014”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.