Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Skólasýningar – Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík

Skólasýningar – Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík

Mar 23, 2014 Engin skoðun

Börn, unglingar og fjölskyldur þeirra munu njóta sannkallaðrar kvikmyndaveislu í Bíó Paradís á Alþjóðlegri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík dagana 20. – 30. mars 2014. Hátíðin mun færa börnum og unglingum á Íslandi aðgang að áhugaverðum barna- og unglingakvikmyndum sem hlotið hafa viðurkenningar um allan heim. Kvikmyndahátíð barna 2014, sem er sú önnur í röðinni, mun bjóða upp á endurgjaldslausar sýningar á skólatíma fyrir grunnskóla- og leikskólabörn. Sýningarnar gengu gríðarlega vel á fyrstu Alþjóðlegu Barnakvikmyndahátíðinni í Reykjavík í fyrra, en um 3000 börn komu í Bíó Paradís á skólasýningar hátíðarinnar 2013.

Um er að ræða sýningar sem hefjast kl 10:00 / 12:00 / 14:00 alla virka daga á meðan hátíðinni stendur. Lengd myndanna og tungumál er tekið fram hér í listanum fyrir neðan.

Athugið kennarar: skólahópum gefst kostur á að panta sæti fyrir sinn bekk á þessar skólasýningar. Hafið samband við Reyni, rekstarstjóra Bíó Paradísar í midasala@bioparadis.is Fyrstir koma – fyrstir fá!

Myndum skipt niður á aldurshópa:

3-5 ára: Litla lirfan/ 3 stuttmyndir í einum pakka

6-7 ára: Stuttmyndapakki 1

8-9 ára: Stuttmyndapakki 2/On the way to School/The Day of the Crows

10-12 ára: Stuttmyndapakki 3 /The Day of the Crows/Believe

13-15 ára: Stuttmyndapakki Íslenskar gerðar af 12 til 15 ára / Östwind / Believe / Clara and the secret of bears

______________________________________________________________________

21. mars – föstudagur

10:00

Salur 1 – Ostwind – Austanvindur (105 mín. – 7+)

Salur 2 – The Day of the Crows – Dagur krákanna (96 mín. – 7+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 1 (54 mín. – 5+)

12:00

Salur 1 – The Weight of Elephants – Þyngd fílanna (83 mín. – 12+)

Salur 2 – On the Way to School – Á leið í skólann (77 mín. – 6+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 2 (50 mín. 7+)

14:00

Salur 2 – Believe – Sjálfstraust (94 mín. – 7+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 3 (46 mín. – 10+)

_____________________________________________________________________

24. mars – mánudagur

10:00

Salur 1 – Skýjahöllin (85 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – On the Way to School – Á leið í skólann (77 mín. – 6+)

Salur 3 – Stuttmyndapakki 4 (48 mín. – Allur aldur)

12:00

Salur 1 – Benjamín dúfa (91 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – Ostwind – Austanvindur (105 mín. – 7+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir (75 mín. – 10+)

14:00

Salur 1 – The Day of the Crows – Dagur krákanna (96 mín. – 7+)

Salur 2 – The Weight of Elephants – Þyngd fílanna (83 mín. – 12+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir gerðar af unglingum fyrir unglinga (60 mín. – 12+)

______________________________________________________________________

25. mars – þriðjudagur

10:00

Salur 1 – Clara and the Secret of the Bears – Klara og leyndarmál bjarndýranna (93 mín. – 8+)

Salur 2 – Believe – Sjálfstraust (94 mín. – 7+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 2 (50 mín. 7+)

12:00

Salur 1 –  Skýjahöllin (85 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – On the Way to School – Á leið í skólann (77 mín. – 6+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 3 (46 mín. – 10+)

14:00

Salur 1 – Ostwind – Austanvindur (105 mín. – 7+)

Salur 2 – Benjamín dúfa (91 mín. – Allur aldur)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 1 (54 mín. – 5+)

______________________________________________________________________

26. mars – miðvikudagur

10:00

Salur 1 – Benjamín dúfa (91 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – The Day of the Crows – Dagur krákanna (96 mín. – 7+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir (75 mín. – 10+)

12:00

Salur 1 – Clara and the Secret of the Bears – Klara og leyndarmál bjarndýranna (93 mín. – 8+)

Salur 2 – Believe – Sjálfstraust (94 mín. – 7+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir gerðar af unglingum fyrir unglinga (60 mín. – 12+)

14:00

Salur 1 – Skýjahöllin (85 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – The Weight of Elephants – Þyngd fílanna (83 mín. – 12+)

Salur 3 – Stuttmyndapakki 4 (48 mín. – Allur aldur)

______________________________________________________________________

27. mars – fimmtudagur

10:00

Salur 1 – Skýjahöllin (85 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – Clara and the Secret of the Bears – Klara og leyndarmál bjarndýranna (93 mín. – 8+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 3 (46 mín. – 10+)

12:00

Salur 1 – Benjamín dúfa (91 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – The Day of the Crows – Dagur krákanna (96 mín. – 7+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 1 (54 mín. – 5+)

14:00

Salur 1 – On the Way to School – Á leið í skólann (77 mín. – 6+)

Salur 2 – Ostwind – Austanvindur (105 mín. – 7+)

Salur 3 – Erlendar stuttmyndir, pakki 2 (50 mín. 7+)

______________________________________________________________________

28. mars – föstudagur

10:00

Salur 1 – Benjamín dúfa (91 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – The Weight of Elephants – Þyngd fílanna (83 mín. – 12+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir gerðar af unglingum fyrir unglinga (60 mín. – 12+)

12:00

Salur 1 – Skýjahöllin (85 mín. – Allur aldur)

Salur 2 – On the Way to School – Á leið í skólann (77 mín. – 6+)

Salur 3 – Stuttmyndapakki 4 (48 mín. – Allur aldur)

14:00

Salur 1 – Believe – Sjálfstraust (94 mín. – 7+)

Salur 2 – Clara and the Secret of the Bears – Klara og leyndarmál bjarndýranna (93 mín. – 8+)

Salur 3 – Íslenskar stuttmyndir (75 mín. – 10+)

Ostwind – Austanvindur

20496574.jpg-r_640_600-b_1_D6D6D6-f_jpg-q_x-xxyxx

(Þýskaland 2013 / Aldur 7+ / enskur texti / 105 mín)

Þessi fallega saga gerist á þýskum hestabúgarði. Unglingsstúlkan Mika, er komið fyrir á hestabúgarði hjá ömmu sinni, því foreldrar hennar taka þá ákvörðun að senda hana í sveit yfir sumarið.  Þar kemst Mika í kynni við villtan hest sem enginn ræður við, þar til Mika kemur í sveitina. Kvikmyndin er á þýsku með enskum texta.

 

The Day of the Crows / Dagur krákanna

JDC_compo_affiche_120x160_UK.indd

(Belgía – Frakkland – Lúxemborg – Kanada 2012 / Aldur 7+ / íslenskur texti  / 96 mín)

Stórbrotin teiknimynd um dreng sem elst upp í hjarta skógarins. Drengurinn þróar með sér hæfileika til að sjá og fylgja leiðbeiningum andanna sem búa í skóginum. Þegar faðir hans verður fyrir slysi neyðist drengurinn til að leita út fyrir skóginn og þá hefjast ævintýrin fyrir alvöru.  Kvikmyndin er á ensku og ótextuð.

 

The Weight of Elephants / Þyngd fílanna

elephants_cover

(Nýja Sjáland – Danmörk – Svíþjóð 2013 / Aldur 12+ / enskt tal / 83 mín)

Adrian er viðkvæmur og einmana 10 ára drengur. Hann býr hjá ömmu sinni og veikum frænda eftir að móðir hans yfirgaf hann á unga aldri. Þegar jafnaldra hans, Nicole, flytur í götuna hefst merkilegur vinskapur þeirra á milli. Myndin er á ensku með engum texta.

 

 

On the Way to School  / Á leið í skólann

school_poster

(Frakkland 2013 / Aldur  6+ / íslenskur texti / 77 mín)

Þessi gríðarlega vinsæla heimildarmynd segir frá þeim Jackson frá Kenía, Carlito frá Argentínu, Zahira frá Marakkó og Samuel frá Indlandi sem eiga það eitt sameiginlegt að þurfa að ferðast hrikalega langar vegalengdir til þess eins að komast í skólann.  Kvikmyndin er á frönsku með enskum texta.

 

Clara and the Secret of the Bears / Klara og leyndarmál bjarndýranna

Clara_and_the_Secret_of_the_Bears-695668061-large

(Sviss 2012 / Aldur 8+ / enskur texti / 93 mín)

Hin 13 ára Clara býr við rætur svissnesku Alpanna ásamt móður sinni og stjúpföður. Fljótlega áttar hún sig á að það liggur bölvun yfir sveitabænum vegna verka forfeðranna en til að aflétta henni þarf Clara að koma á sáttum á milli manna og náttúru.

 

 

Believe / Fótboltadraumar

Theatre-of-dreams

(Bretland 2013 / Aldur 7+ / enskt tal / 94 mín)

Stórkostleg mynd um dreng í Manchester árið 1984 sem á sér draum að keppa á stórmóti í fótbolta. Hjálpin berst úr óvæntri átt þegar Manchester United þjálfarinn Matt Busby tekur það að sér að aðstoða liðið við að komast alla leið.

 

 

Skýjahöllin

Skyjahollin

(Ísland 1994 / Allur aldur / íslenska / 85 mín)

Emil er átta ára strákur sem langar að eignast hvolp. Pabbi hans gefur samþykki sitt gegn því að að Emil safni fyrir honum sjálfur. Pabbi hans trúir nefnilega ekki að honum takist að safna fyrir hvolpinum.

 

 

Benjamín dúfa

Benjamin_dufa_plagat(Ísland 1995 / Allur aldur / íslenska / 91 mín)

Í myndinni segir frá fjórum vinum og viðburðaríku sumri í lífi þeirra. Regla rauða drekans er stofnuð og þeir Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa hafa nóg fyrir stafni í baráttu sinni gegn ranglæti.

 

 

 

Erlendar stuttmyndir – 1

339575199_1280 (1)(Aldur 5+ / án tals/ 54 mín)

Fyrir yngstu börnin er boðið upp á sjö myndir frá fjórum löndum. Allar myndirnar hafa verið sýndar á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heim. Á meðal þeirra er franska perlan Monsterbox sem segir frá lítilli stúlku sem leitar af þaki yfir höfuðið á skrímslunum sínum.

Erlendar stuttmyndir –  2

426256324_640(Aldur 7+  / án tals / 50 mín)

Hér er í boði sýnishorn frá öllum heimshornum enda um að ræða sjö rómaðar myndir frá jafn mörgum löndum. Þar á meðal er hollenski gullmolinn Granny Lane sem er heldur betur skemmtileg útgáfa af klassísku sögunnu um skjaldbökuna og hérann.

Erlendar stuttmyndir – 3

Flamingo 4 poster(Aldur 10+ / enska/franska/spænska / 46 mín)

Í þessum pakka eru sex myndir frá frá fjórum löndum. Í sumum þeirra er talað því ágætt að hafa einhverja enskukunnáttu. Það ætti engin að láta framhjá sér fara tilvistarkreppu flamingófuglsins í þýsku perlunni Flamingo Pride sem er á meðal myndanna.

 

 

Stuttmyndapakki 4 (48 mín)

litla_lirfan_ljota_2002Litla lirfan ljóta (Ísland 2002 / Allur aldur / íslenska og án tals / 28 mín)

Monsterbox  (Frakkland 2012/  án tals/  8 mín)

The Odd Sound Out (Danmörk 2013/ án tals/  7 mín)

Tumblies  (Holland 2013/ án tals/ 5 mín)

Þessi pakki er fyrir allra yngstu börnin – kynslóðinna sem hefur ekki ennþá fengið að upplifa hina yndislegu íslensku perlu Litlu lirfuna ljótu og til að gera góða skemmtun betri bætum við þremur frábærum smábarnateiknimyndum.

Íslenskar stuttmyndir

little_cosmonaut_poster(Aldur 10+ / íslenska / 75 mín)

Við bjóðum upp á fjórar stórskemmtilegar stuttmyndir eftir íslenska leikstjóra. Þetta eru myndirnar Heilabrotinn, Snjór, Lítill geimfari og Ráðagóða stelpan. Ólíkar myndir eftir fjóra fagmenn.

 

 

 

Íslenskar stuttmyndir gerðar af unglingum fyrir unglinga

(Aldur 12+ / íslenska / 60 mín)

Það er ekki skortur á íslenskum stuttmyndum gerðum af íslenskum unglingum og í samvinnu við Myndver grunnskólanna tekið saman frábæran pakka með ekta unglingastuttumyndum. Þ.á.m. er heimildarmynd um tónlistakonuna Kolfinnu Nikulásdóttur frá því hún var sjálf unglingur, en eins og rappáhugafólk veit hefur Kolfinna m.a. getið sér gott orð með Reykjarvíkurdætrum.

______________________________________________________________________

Með kvikmyndahátíð barna 2014 stóreykst kvikmyndaframboð barna og fjölskyldufólks og sjónarhorn þessa áhorfendahóps verður víðara og fjölbreyttara.

Verkefnastjórar Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík 2014 eru Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri, Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri, Þór Jóhannesson verkefnastjóri og Oddný Sen kvikmyndafræðingur.

Nánari upplýsingar veitir Reynir Berg, rekstrarstjóri Bíó Paradís í síma 695 2299 og á netfanginu reynirberg@gmail.com

Börn í Bíó Paradís, Fréttir/pistlar, Ísland, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Skólasýningar – Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.