Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Umsóknarfrestur fyrir störf við Kvikmyndahátíð í Reykjavík 30. apríl

Umsóknarfrestur fyrir störf við Kvikmyndahátíð í Reykjavík 30. apríl

Apr 29, 2014 Engin skoðun

Kvikmyndahátíð í Reykjavík óskar eftir áhugasömu, metnaðarfullu og duglegu starfsfólki til að starfa við hátíðina í haust. Við leitum að fólki í eftirfarandi stöðugildi:

Framleiðandi Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér að sjá um um framkvæmd, verkstjórnun og yfirumsjón með viðburðum hátíðarinnar. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi reynslu og áhuga á markaðsmálum og fjármögnun menningarviðburða.

Kynningar- og markaðsstjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón með kynningarmálum hátíðarinnar. Viðkomandi þarf að vera vel talandi og skrifandi á íslensku og ensku og æskilegt er að hafa reynslu af blaða- og fréttamennsku.

Gestastjóri Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Starfið felur í sér umsjón innlendra- og erlendra gesta hátíðarinnar ásamt því að gestastjóri hefur yfirumsjón með móttöku erlendra blaðamanna og tekur þátt í skipulagningu og útfærslu kynningarmessu hátíðarinnar.

Við leitum að fólki sem getur unnið sjálfstætt, sýnir fram á frumkvæði og hefur brennandi áhuga á skapandi umhverfi kvikmyndahátíðar. Umsóknir um ofantalin störf sendist á jobs@reykjavikfilmfest.is ásamt ferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl.

Fréttir/pistlar, Kvikmyndahátíð í Reykjavík
Engin skoðun á “Umsóknarfrestur fyrir störf við Kvikmyndahátíð í Reykjavík 30. apríl”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.