Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Welcome to New York

Welcome to New York

Jul 02, 2014 Engin skoðun
  • Tegund og ár: Drama, 2014
  • Lengd: 125 mín
  • Land: Bandaríkin
  • Leikstjóri: Abel Ferrara
  • Aðalhlutverk: Jacqueline Bisset, Gérard Depardieu, Drena De Niro
  • Dagskrá: Nýjar myndir
  • Sýnd: 4. júlí 2014

Efni: Kvikmynd um hneykslismál aldarinnar Frakkland stóð á öndinni yfir dramatísku syndafalli Dominique Strauss-Kahn, þegar hann var ákærður fyrir að áreita hótelþernu í New York kynferðislega. Franska þjóðin saug í sig fréttaflutning af málinu, reif í sig bókina sem skrifuð var um það og fylgdist með málaferlunum í kjölfarið. Nú, þremur árum eftir að atburðirnir áttu sér stað, gefst heimsbyggðinni tækifæri til að sjá kvikmyndina um málið. Gérard Depardieu leikur aðalhlutverkið í Welcome to New York, en nafni Strauss-Kahn hefur verið breytt í hr. Devereaux sem er afar valdamikill maður. Milljarðar dollara fara í gegnum hans hendur á hverjum einasta degi. Hann stýrir efnahagslegum örlögum heilu þjóðanna, en er knúinn áfram af óbeislaðri og villtri kynhvöt. Hr. Devereaux dreymir um að bjarga heiminum, en getur ekki einu sinni bjargað sjálfum sér og er gersamlega skelfingu lostinn. Depardieu hefur ekki farið í grafgötur með andúð sína á fyrrum framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en segir kvikmyndina fyrst og fremst fjalla um völd, einmanaleika og hnignun.

Hér getur þú keypt miða. Miðasala fer einnig fram í Bíó Paradís.

//

Mr. Devereaux is a powerful man. A man who handles billions of dollars every day. A man who controls the economic fate of nations. A man driven by a frenzied and unbridled sexual hunger. A man who dreamed of saving the world and who cannot save himself. A terrified man. A lost man. Here you can buy tickets online

Bandaríkin, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Welcome to New York”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.