Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Believe / Fótboltadraumar

Believe / Fótboltadraumar

Aug 01, 2014 Engin skoðun

Ensku fjölskyldumyndinni Fótboltadraumar e. Believe – a theatre of dreams (Bretland 2013 / Aldur 7+ / íslenskur texti / 94 mín), var geysivel tekið á Alþjóðlegu Barnakvikmyndahátíðinni okkar í Bíó Paradís sem lauk fyrr á árinu. Myndin er sýnd með íslenskum texta.

Skemmtileg og vel gerð mynd um dreng í Manchester árið 1984 sem á sér þann draum að keppa á stórmóti í fótbolta. Hjálpin berst úr óvæntri átt þegar Manchester United þjálfarinn Matt Busby tekur að sér að aðstoða liðið við að komast alla leið. En eins og sannir knattspyrnuáhugamenn vita, þá þjálfaði hann Busby Boys liðið sem lenti í flugslysi í Munchen árið 1958 með þeim afleiðingum að flestir leikmennirnir létust. Matt lifði hins vegar af. Í myndinni er þessum sönnu atburðum tvinnað inn í skálduðu atburðina og söguna af drengnum unga og draumum hans.

TOD_PIC_GeorgieFinal_lookMyndin var tilnefnd til áhorfendaverðlauna Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík 2014. Fótboltadraumar var einnig valin besta barnamyndin á Kvikmyndahátíðinni í Zurich 2013 og tilnefnd sem besta barnamyndin á kvikmyndahátíðinni í Tallinn 2013.

Hér er hægt að kaupa miða á netinu. 

 

Bíó Paradís, Börn í Bíó Paradís, Bretland, Evrópa, Fréttir/pistlar, Kvikmyndir
Engin skoðun á “Believe / Fótboltadraumar”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.