Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Kvikmyndafræðsla – dagskrá

Kvikmyndafræðsla – dagskrá

Sep 05, 2014 Engin skoðun

Bíó Paradís kynnir með stolti dagskrá kvikmyndafræðslu haustið 2014.

Bíó Paradís stendur fyrir kvikmyndafræðslu fyrir börn og unglinga sex vikur í senn á hvorri önn skólaársins.

Sýningar eru á fimmtudögum kl. 10:00 (fyrir börn 1. – 6. bekk) og kl. 13:00 (fyrir 7. – 10. bekk).

Verkefnisstjóri er Oddný Sen, kvikmyndafræðingur. Hér er hægt að kynna sér grunnskólasýningar á haustönn 2014.

Sýningar fyrir framhaldsskólanema er á föstudögum kl 14:15

Hér er hægt að kynna sér dagskrá ætlaða framhaldsskólum í Bíó Paradís á haustönn 2014.

Tilgangurinn með sýningunum er að veita börnum og unglingum möguleika á að kynnast kvikmyndum sem hafa alþjóðlega gæðastimpla, eru ýmist klassískar perlum frá öllum skeiðum kvikmyndasögunnar og eru lykilkvikmyndir sem hafa skapað sér sess innan kvikmyndasögunnar. Þannig verða sýndar myndir frá Bandaríkjunum, Evrópu, Norðurlöndum, Austurlöndum, Íslandi og öllum heimsins hornum. Á undan hverri sýningu er haldinn fyrirlestur til að auðvelda áhorfendum að greina kvikmyndina ásamt hugmyndum að ritgerðum og umsögnum barnanna um kvikmyndirnar.

Leitast verður við að skoða margvísleg temu eins og unglingsárin, tengsl nútíma kvikmynda við kvikmyndasöguna, úrvinnslu tilfinninga, félagsleg tengsl, samfélagsleg tengsl, einelti, listsköpun, sjónarhorn og uppsetningu svo fátt eitt sé nefnt.

Þessar skólasýningar hófust veturinn 2011-2012 í samvinnu við fræðsluyfirvöld og skóla.

Fréttir/pistlar
Engin skoðun á “Kvikmyndafræðsla – dagskrá”

Svara færslunni

You must be logged in to post a comment.