I’m an Old Communist Hag + Spurt og svarað
- Tegund og ár: Drama, 2013
- Lengd: 110 mín
- Land: Rúmenía
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Stere Gulea – spurt og svarað með leikstjóra eftir sýninguna. Valur Gunnarsson, stýrir umræðum.
- Aðalhlutverk: Luminiţa Gheorghiu, Marian Râlea, Ana Ularu, Collin Blair
- Dagskrá: Rúmenskir kvikmyndadagar
- Sýnd: 12. október – Alþjóðleg frumsýning kl 18:00 // Gala sýning.
Efni: Alþjóðleg frumsýning á einni nýjustu kvikmynd Rúmeníu, á Gala sýningu Rúmenskra kvikmyndadaga. Leikstjórinn Stere Gulea verður viðstaddur sýninguna og mun hann svara spurningum úr sal að henni lokinni.
Myndin fjallar um Emiliu, sextíu ára gamla konu sem lifir friðsömu lífi með eiginmanni sínum Tucu, í litlum bæ í Rúmeníu. Parið verður yfir sig hrifið þegar dóttir þeirra hringir í þau frá Kanada, þar sem hún tilkynnir þeim það að hún muni heimsækja þau ásamt amerískum kærasta sínum. Emilia, sem er fræg fyrir að lifa eftir kommúnískri nostalgíu, er á sama tíma beðin um að taka þátt í heimildamynd sem fjallar um þjóðhátíðardaginn 23. ágúst, sem var þjóðhátíðardagur rúmena fyrir byltinguna 1989. Það sem átti að verða skemmtileg fjölskylduheimsókn dótturinnar snýst allt í einu um mjög rúmanskar aðstæður, þar sem kynslóðabilið kemur afar vel í ljós.
Myndin er byggða á bókinni I’m an Old Communist Hag / Sunt o baba comunista (2007) eftir Dan Lungu. Hér er hægt að kaupa miða á midi.is