Reykjavík, ó Reykjavík!: Reykjavíkurbíó í fimmtíu ár
Reykvísk stemmning síðastliðinna fimmtíu ára: 79 af stöðinni, Rokk í Reykjavík, 101 Reykjavík og heimildamyndirnar Öskudagur , Kjötborg og Íslensk alþýða.
Reykvísk stemmning síðastliðinna fimmtíu ára: 79 af stöðinni, Rokk í Reykjavík, 101 Reykjavík og heimildamyndirnar Öskudagur , Kjötborg og Íslensk alþýða.
Backyard, tónleikamynd eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson, er opnunarmynd Bíós Paradísar.
Backyard, tónleikamynd eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson, verður opnunarmynd Bíós Paradísar þann 15. september næstkomandi. Myndin lýsir tónleikum sem haldnir voru í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt 2009, nánar tiltekið í bakgarði á horni Bergþórugötu og Frakkastígs. Fram koma margar af ferskari hljómsveitum landsins; Hjaltalín, FM Belfast, Múm, Reykjavík!, Retro Stefson, Borko og Sin Fang Bous.
Í þægilegu og afslöpp-
uðu umhverfi Bíós Para-
dísar er hægt að setjast niður fyrir eða eftir bíóferð, glugga í bækur, kíkja í blöð eða spá og spekúlera yfir kaffibolla, vín- eða bjórglasi og léttum veitingum. Jafnframt eru til sölu mynddiskar og fljótlega bætast við kvikmynda-
bækur og -blöð og annar skyldur varningur.
Nú sér fyrir endann á margra mánaða undirbúningi og um leið rætist margra ára draumur ótal margra um sérstakt kvikmyndahús – bíótek – sem leggur áherslu á fjölbreytni í framboði kvikmynda og býður uppá sérstaka stemmningu; samfélag þeirra sem vilja upplifa andrúmsloft kvikmyndanna í sem breiðustum skilningi.
Regnboginn við Hverfisgötu gengur í endurnýjun lífdaganna í september næstkomandi og fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna. Bíó Paradís mun hafa á dagskrá sinni nýjar áhugaverðar kvikmyndir víðsvegar að, auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsa kvikmyndahátíðir og standa fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum.