Warning: Declaration of description_walker::start_el(&$output, $item, $depth, $args) should be compatible with Walker_Nav_Menu::start_el(&$output, $item, $depth = 0, $args = Array, $id = 0) in /home/forge/old.bioparadis.is/public/wp-content/themes/newscast/framework/classes/description_walker.php on line 43
Fréttir/pistlar

Færslur fyrir Fréttir/pistlar

Október í Bíó Paradís!

Oct 04, 2010 Engin skoðun

Októberdagskrá Bíó Paradísar liggur nú fyrir og hægt að kynna sér hér. Alls eru hátt í þriðja tug kvikmynda af öllum stærðum og gerðum, leiknar myndir, heimildamyndir og stuttmyndir – íslenskar og erlendar – á dagskránni í október.

Fréttir/pistlar Lesa meira

Dr. Gunni: “Bíó Paradís – rosaleg snilld”

Sep 21, 2010 Engin skoðun

Bíó Paradís hefur farið mjög vel af stað og við erum afar þakklát fyrir móttökurnar. Slástu í hópinn á Fésbók. Um 3.500 manns þegar búnir að melda sig – hátt á annað hundrað bætast við daglega.

Fréttir/pistlar Lesa meira

Takk Reykjavíkurborg!

Sep 17, 2010 Engin skoðun

Nú þegar Bíó Paradís hefur opnað og við blasir breytt landslag í kvikmyndamenningu Íslendinga, er rétt að halda því til haga að án kjarkaðrar og framsýnnar ákvörðunar borgarstjórnar Reykjavíkur um að styrkja verkefnið myndarlega nú um mitt sumar, hefði ekki orðið af þessari starfsemi. Framlag borgarinnar leysti úr læðingi margskonar krafta fólks úr öllum áttum, sem lagði saman til að gera þessa hugsjón að veruleika á undraskömmum tíma.

Lesa meira

Bíó Paradís opnar með glæsibrag

Sep 16, 2010 Engin skoðun

Bíó Paradís opnaði formlega í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi hæstánægðra gesta. Frumsýnd var kvikmyndin Backyard eftir Árna Sveinsson og á eftir var fagnað í forsölum bíósins, sem hafa nú fengið nýjan brag.

Lesa meira

Farðu aftur í bíó í fyrsta sinn

Sep 11, 2010 Engin skoðun

Skoðið nýju stikluna okkar þar sem hópur Íslendinga tjáir sig um upplifanir sínar í bíói!

Lesa meira

Backyard á Fésbók

Sep 08, 2010 Engin skoðun

Árni Sveinsson og Sindri Kjartansson, aðstandendur Backyard, standa í ströngu þessa dagana, enda aðeins vika í frumsýningu í Bíó Paradís.

Lesa meira

Backyard opnar Bíó Paradís

Aug 30, 2010 Engin skoðun

Backyard, tónleikamynd eftir Árna Sveinsson og Sindra Kjartansson, verður opnunarmynd Bíós Paradísar þann 15. september næstkomandi. Myndin lýsir tónleikum sem haldnir voru í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt 2009, nánar tiltekið í bakgarði á horni Bergþórugötu og Frakkastígs. Fram koma margar af ferskari hljómsveitum landsins; Hjaltalín, FM Belfast, Múm, Reykjavík!, Retro Stefson, Borko og Sin Fang Bous.

Lesa meira

Nýr valkostur í kvikmyndaupplifun Íslendinga

Aug 29, 2010 Engin skoðun

Íslendingar eru meðal helstu kvikmyndaneytenda heimsins, fara að meðaltali rúmlega fimm sinnum í bíó á ári og sjá aðrar sjö myndir heima hjá sér. Kvikmyndahúsin hér eru vel útbúin og sinna eftirspurn eftir meginstraumskvikmyndum (fyrst og fremst frá Hollywood) með miklum ágætum.

Lesa meira

Margra mánaða undirbúningi að ljúka

Aug 29, 2010 Engin skoðun

Nú sér fyrir endann á margra mánaða undirbúningi og um leið rætist margra ára draumur ótal margra um sérstakt kvikmyndahús – bíótek – sem leggur áherslu á fjölbreytni í framboði kvikmynda og býður uppá sérstaka stemmningu; samfélag þeirra sem vilja upplifa andrúmsloft kvikmyndanna í sem breiðustum skilningi.

Lesa meira

Bíó Paradís opnar í september

Aug 29, 2010 Engin skoðun

Regnboginn við Hverfisgötu gengur í endurnýjun lífdaganna í september næstkomandi og fær heitið Bíó Paradís – heimili kvikmyndanna. Bíó Paradís mun hafa á dagskrá sinni nýjar áhugaverðar kvikmyndir víðsvegar að, auk hverskyns eldri mynda erlendra sem innlendra, hýsa kvikmyndahátíðir og standa fyrir hverskyns kvikmyndatengdum viðburðum.

Lesa meira