A Woman, a Gun and a Noodle Shop (Kona, byssa og núðluhús)
- Tegund og ár: Leikin mynd, 2009
- Lengd: 95 mín.
- Land: Kína
- Texti: Íslenskur
- Leikstjóri: Yimou Zhang
- Aðalhlutverk: Dahong Ni, Ni Yan, Xiao Shen-Yang
- Dagskrá: Nýjar myndir
- Sýnd frá: 8. apríl 2011
EFNI: Eigandi núðluhúss í Kína leggur á ráðin um að myrða ótrúa eiginkonu sína og elskhuga hennar en ráðabruggið fer vægast sagt úr böndunum.
UMSÖGN: A Woman, a Gun and a Noodle Shop er endurgerð á fyrstu mynd Coen bræðra, Blood Simple, frá 1985. Sögusvið upprunalegu myndarinnar hefur verið fært frá smábæ í Texasfylki í Bandaríkjunum til núðluhúss í litlum eyðimerkurbæ í Gansuhéraði í Kína. Myndin var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín í fyrra. Þar hlaut hún frábærar viðtökur og var m.a. tilnefnd til Gullna bjarnarins, aðalverðlauna hátíðarinnar.